Erlent

Um­deildur gervi­hnöttur orðinn eitt bjartasta fyrir­bærið á nætur­himninum

Kjartan Kjartansson skrifar
Loftnet BlueWalker 3 er meira en 64 fermetrar. Gervihnötturinn er bjartari en nær öll önnur fyrirbæri á næturhimninum.
Loftnet BlueWalker 3 er meira en 64 fermetrar. Gervihnötturinn er bjartari en nær öll önnur fyrirbæri á næturhimninum. AP/Business Wire

Nýtt bandarískt fjarskiptagervitungl er nú á meðal björtustu fyrirbæranna þar sem það ferðast um næturhimininn en til stendur að senda fleiri en hundrað slík á loft. Stjörnufræðingar óttast að þau muni spilla fyrir athugunum frá jörðu niðri og menga næturhimininn.

Geimferða- og fjarskiptafyrirtæki eru þegar byrjuð að senda örgervihnetti á braut um jörðu. Sumir þeirra, eins og Starlink-gervihnattaþyrping SpaceX, knýja háhraðainternet úr geimnum sem á að nýtast fólki á afskekktum stöðum eða hamfarasvæðum. Úkraínuher hefur meðal annars reitt sig á Starlink til að verjast innrás Rússa.

Stjarnvísindamenn sem rannsaka himingeiminn með sjónaukum frá jörðu niðri hafa kvartað undan því að herskarar örgervihnatta spilli fyrir athugunum þeirra þegar þeir þjóta í gegnum sjónsvið sjónaukanna. Á myndum sjónauka sem eru næmir koma örgervihnettirnir fram sem skærar rákir sem hylja allt sem á bak við þær leynast.

Nú þegar þurfa stjörnufræðingar að skipuleggja athuganir sínar til þess að forðast gervihnattaþyrpingarnar. Það verkefni gæi reynst ómögulegt þegar sífellt fleiri og bjartari gervihnettir fylla himininn.

Ólíkt Starlink og öðrum örgervihnöttum er BlueWalker 3-gervihnötturinn sem fyrirtækið AST SpaceMobile, sem er með höfuðstöðvar í Texas í Bandaríkjunum, skaut á loft í september í fullri stærð og meira til. Hnötturinn er á lágri braut um jörðu en tilgangurinn hans er vera fjarskiptamastur fyrir farsíma í geimnum.

Í þeim tilgangi er hann með risavaxið loftnet, rúma 64 fermetra að flatarmáli. Aldrei áður hefur gervihnöttur sem rekin er í viðskiptalegum tilgangi verið með svo stórt loftnet á lágri braut um jörðu. Athuganir staðfestu nýlega að loftnetið endurvarpar svo miklu ljósi að gervihnötturinn er eitt bjartasta fyrirbærið á himinum þar sem hann fer um, bjartari en tæp 99 prósent af öllum sjáanlegum stjörnum.

BlueWalker 3 er aðeins frumgerð en AST SpaceMobile áformar að skjótast 168 enn stærri gervihnöttum á braut um jörðu á næstu árum.

Meiriháttar breyting á vandamálinu

Það er ekki aðeins birtan frá sveimi slíkra gervihnatta sem veldur stjörnufræðingum áhyggjum heldur útvarpsmerkin sem þeir senda frá sér. Ólíkt fjarskiptamöstrum á jörðu niðri þurfa gervihnettirnir ekki að sæta takmörkunum á útvarpstruflunum sem er ætlað að vernda útvarpssjónauka og fleiri rannsóknir. Þannig gætu gervihnettirnir spillt fyrir stjörnurfræðiathugunum á útvarpssviðinu, landmælingum og stjarneðlisfræðitilraunum.

„BlueWalker 3 er meiriháttar breyting á vandamálinu með gervihnattaþyrpingar og við ætti að vera okkur öllum tilefni til þess að staldra við,“ segir Piero Benvenuti, framkvæmdastjóri verkefnis um vernd næturhiminsins fyrir gervihnattaþyrpingum hjá Alþjóðastjörnufræðisambandinu (IAU).

Sambandið sendi frá sér yfirlýsingu í byrjun vikunnar þar sem það lýsti yfir áhyggjum af áhrifum BlueWalker 3 og áformum AST SpaceMobile sérstaklega á stjörnufræðiathuganir. Þrátt fyrir að gervihnettirnir gætu verið mikilvægir í að bæta fjarskipti í heiminum þá muni truflanir þeirra á athuganir verulega hindra framþróun í skilningi mannkynsins á alheiminum.

Þess vegna ætti að gæti að hliðaráhrifum hnattanna og grípa til ráðstafana til þess að lágmarka áhrif þeirra á stjörnufræðiathuganir.

Útvarpssjónaukar eru byggðir fjarri mannabyggðum til þess að lágmarka truflanir af völdum alls kyns útvarpsmerkja. Rannsóknir þeirra voru erfiðar fyrir en nú gætu þeir þurft að glíma við sterk útvarpsmerki frá gervihnöttum á braut um jörðu.Vísir/Getty

Ekki nógu mörg fjögurra stafa orð í orðaforðanum um hryllinginn

Gervihnettir AST SpaceMobile eru svo bjartir að þeir gætu jafnvel skemmt viðkvæman rafeindabúnað sjónaukamyndavéla og myndavéla áhugastjörnufræðinga, að því er kom fram í grein um áhrif gervihnattaþyrpinga í tímaritinu Scientific American fyrr í þessum mánuði. Í henni var þyrpingunum lýst sem tilvistarlegri ógn við stjörnufræði.

SpaceX hefur reynt að dekkja Starlink-gervihnetti sína til þess að lágmarka áhrif þeirra á stjörnufræði en hnettirnir eru engu að síður sjáanlegir. Önnur fyrirtæki huga ekkert að því.

AST SpaceMobile segir að frumgerðin sem nú er á braut um jörðu eigi að veita upplýsingar um byggingarefni gervihnattarins og birtustig hans. Fyrirtækið vinni með sérfræðingum og bandarísk geimvísindastofnuninni NASA að því að bregðast við áhyggjum af bjarmanum frá gervihnöttunum.

Alþjóðastjörnufræðisambandið segist hafa sent fjarskiptastofnun Bandaríkjanna (FCC) bréf til að hvetja hana til þess að taka áhrif gervihnattaþyrpinga á stjörnufræði, ásýnd næturhiminsins og umhverfið með í reikninginn. FCC hefur sagst ætla að setja á fót sérstaka deild til þess að taka á þessum málum.

Á meðan engjast stjörnufræðingar um af kvíða um að möguleikar þeirra á að rannsaka alheiminn verði verulegar skertir.

„Ég hef ekki nógu mörg fjögurra stafa orð í orðaforða mínum til þess að lýsa nægjanlega viðbrögðum mínum við þessum hryllingi. Tímabil viðskiptavædds geims er runnið upp og það verður aðeins ljótara, mun ljótara, héðan í frá,“ tísti Carolyn Porco, reikistjörnufræðingur sem vann við Voyager- og Cassini-leiðangrana um fréttirnar af BlueWalker 3.

Fleiri stjörnufræðingar hafa tekið í svipaðan streng.


Tengdar fréttir

Fyrstu Starlink-rákirnar á næturhimni yfir Íslandi

Fyrstu Starlink-gervihnettirnir frá fyrirtækinu SpaceX hafa sést á himni yfir Íslandi. Þeim var skotið á loft fyrir nokkrum dögum og farnir að setja mark sitt á næturhimininn yfir Íslandi. Gervihnöttum sem þessum mun fara hratt fjölgandi og munu þeir hafa mikil áhrif á ásýnd himinsins.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×