Kynning á keppendum: Standa saman en ætla sér þó öll sigur Tinni Sveinsson skrifar 13. október 2022 08:01 Flóki, Þorleifur, Mari, Friðrik og Rúnar keppa í bakgarðshlaupinu um helgina. Íslensku ofurhlaupararnir sem keppa í heimsmeistaramóti landsliða í bakgarðshlaupi um helgina koma úr ýmsum áttum og búa allir að gríðarlega mikilli hlaupareynslu.
Næstu helgi keppa fimmtán ofurhlauparar fyrir Íslands hönd í bakgarðshlaupi í Elliðaárdal. Ræst verður á sama tíma í þrjátíu og sjö löndum og hlaupið hring eftir hring þar til aðeins einn hlaupari stendur eftir. Hlaupið verður í beinni útsendingu hér á Vísi. Sjá nánar: Keppa um heimsmeistaratitil í beinni útsendingu úr Elliðaárdal Í gær og í fyrradag voru tíu keppendur sem hlaupa fyrir Íslands hönd kynntir. Hér að neðan kynnumst við síðustu fimm keppendunum en þetta eru þau sem hafa hlaupið lengst í bakgarðshlaupum síðustu missera. Rúnar Benediktsson. Keppandi 5 Rúnar Sigurðsson er 58 ára tölvunarfræðingur hjá Advania úr Hafnarfirði. Hann hefur stundað hlaup í 25 ár og nýtur þess meira með hverju ári sem líður, ekki síst vegna góðra hlaupafélaga. Það sem heillar hann við bakgarðshlaupin er að þau eru undarleg blanda af hörku og vellíðan. Hann hefur áður farið 24 hringi í bakgarðshlaupi, rúma 160 kílómetra, og stefnir á að hlaupa lengra um helgina. Friðrik Benediktsson. Keppandi 4 Friðrik Benediktsson er 39 ára stjórnandi þungavinnuvéla og þriggja barna faðir úr Vestmannaeyjum. Hann byrjaði að stunda hlaup 2018 og lítur svo á að þar hafi hann fundið púsl sem vantaði í lífið. Hann hrífst af þeim eiginleika bakgarðshlaupa að í þeim þarftu ekki að hlaupa hraðast allra heldur að skila þér í rásmarkið áður en næsti hringur hefst. Huglægi þátturinn skiptir sköpum og ef þú stendur þig vel í honum getur fátt stöðvað þig. Friðrik reynir í öllu að vera fyrirmynd barna sinna og kenna þeim að ef maður er duglegur nær maður árangri. Í hlaupinu um helgina stefnir hann á að skila sér alltaf í rásmarkið og að safna fjölda hringa fyrir íslenska liðið. Mantra Friðriks fyrir hlaupið er „Þetta er ekki búið fyrr en ég hef sigrað.“ Flóki Halldórsson. Keppandi 3 Flóki Halldórsson er 48 ára þriggja barna faðir í Reykjavík sem starfar hjá Seðlabankanum. Hann byrjaði að stunda hlaup 2009 og hefur lokið fjölda ofurhlaupa síðustu ár. Flóki segir frábært að stunda hlaup, meðal annars til að ná stjórn á hugsunum sínum, vera í góðu formi og lifa heilbrigðum lífstíl. Fólk í hlaupasamfélaginu á Íslandi sé líka framúrskarandi. Hann segir marga kannski halda að bakgarðshlaupin séu auðveld en þau reyni virkilega á sál og líkama. Góð áætlun sé nauðsynleg áður en hlaupið sé af stað. Mantra Flóka fyrir hlaupið um helgina er „Ég tek einn í viðbót.“ Þorleifur Þorleifsson. Keppandi 2 Þorleifur Þorleifsson er 43 ára sérfræðingur hjá Marel og þriggja barna faðir úr Reykjavík. Hlaupaferill hans byrjaði 2009 þegar hann skráði sig í Laugavegshlaupið og hefur hann tekið þátt í því á hverju ári síðan. 2020 sigraði Þorleifur fyrsta bakgarðshlaupið sem haldið var á Íslandi. Hann segir bakgarðshlaupin vera hrífandi því auk einfaldleika hlaupsins sjálfs sé taktík einnig mikilvæg. Hann hefur lengst farið 42 hringi, alls tæpa 282 kílómetra. Markmið hans fyrir helgina er að Ísland sé meðal 15 efstu landa. Hann stefnir einnig á að hlaupa síðasta hringinn einn. Mari Järsk. Keppandi 1 Mari Järsk er 34 ára ræstitæknir frá Eistlandi sem hefur verið búsett á Íslandi frá 2005. Hún er orkumikil og veit ekkert betra en að hvetja aðra til dáða. Hún kolféll fyrir ofurhlaupum þegar hún tók þátt í Mt. Esja Ultra fjallahlaupinu árið 2019 og hefur verið óstöðvandi síðan. Mari hefur tvisvar sigrað bakgarðshlaup, í fyrra og nú í vor. Þá setti hún Íslandsmet, 43 hringir eða 288 kílómetrar. Markmið Mari fyrir helgina er að hlaupa enn lengra og að hjálpa liðinu öllu að ná sem lengst. Falleg braut í Elliðaárdal Keppnisstaðurinn á Íslandi verður í Elliðaárdal og fer hlaupabrautin um góða stíga dalsins. Eins og sést á myndbandinu í spilaranum hér að neðan er brautin falleg. Klippa: Svona er brautin í bakgarðshlaupinu í Elliðaárdal
Hlaup Bakgarðshlaup Tengdar fréttir Kynning á keppendum: Ætlar að syngja Phil Collins á meðan á hlaupinu stendur Íslensku ofurhlaupararnir sem keppa í heimsmeistaramóti landsliða í bakgarðshlaupi um helgina koma úr ýmsum áttum og búa allir að gríðarlega mikilli hlaupareynslu. 12. október 2022 08:00 Kynning á keppendum: Ekki vera lúser og treystu ferlinu Íslensku ofurhlaupararnir sem keppa í heimsmeistaramóti landsliða í bakgarðshlaupi um helgina koma úr ýmsum áttum og búa allir að gríðarlega mikilli hlaupareynslu. 11. október 2022 13:59 Keppa um heimsmeistaratitil í beinni útsendingu úr Elliðaárdal Næstu helgi keppa fimmtán ofurhlauparar fyrir Íslands hönd í bakgarðshlaupi í Elliðaárdal. Ræst verður á sama tíma í þrjátíu og sjö löndum og hlaupið hring eftir hring þar til aðeins einn hlaupari stendur eftir. Hlaupið verður í beinni útsendingu hér á Vísi. 10. október 2022 17:01 Mest lesið Sauð upp úr á blaðamannafundi Hollands á EM Fótbolti Liverpool borgar fjölskyldu Jota það sem hann átti eftir af samningnum Sport Taka ákvörðun um Glódísi á leikdag Fótbolti Óvissan tekur við hjá Hákoni Enski boltinn Uppgjörið: ÍBV - Víkingur 0-0 | Hundleiðinlegt í Eyjum Íslenski boltinn Heimir og Lagerbäck sameinaðir á ný Fótbolti Þrennubikar Man. United geymdur á Anfield Enski boltinn Uppgjörið: Vestri - Valur 0-2 | Valur heldur pressu á Víkingum Íslenski boltinn Uppgjörið: ÍA - Fram 0-1 | Vuk heldur áfram að skora Íslenski boltinn Oasis tileinkaði Diogo Jota lag á fyrstu tónleikunum í sextán ár Enski boltinn Fleiri fréttir „Búnir að vera á smá hrakhólum“ Í beinni: Frakkland - England | Risaleikur í Zurich Evrópumeistararnir kláruðu Bayern tveimur mönnum færri Uppgjörið: ÍBV - Víkingur 0-0 | Hundleiðinlegt í Eyjum „Ég er bara þokkalega sáttur með okkar leik í dag“ Diego Leon orðinn leikmaður Manchester United Walker fer til Burnley Hundur vildi prófa nýja gervigrasið og fór inn á völlinn í Eyjum Wales - Holland 0-3 | Holland númeri of stórt fyrir Wales Max Verstappen nær ráspól á Silverstone Æfðu ekki á vellinum: Vildu sleppa við rútuferð og tímapressu Jamie Gittens til Chelsea fyrir tæpar 50 milljónir Ísland fór létt með Bosníu á u-18 Eurobasket Taka ákvörðun um Glódísi á leikdag Jafntefli í Íslendingaslag í Noregi Svona var fundur Íslands fyrir stórleikinn við Sviss á EM Uppgjörið: ÍA - Fram 0-1 | Vuk heldur áfram að skora Uppgjörið: Vestri - Valur 0-2 | Valur heldur pressu á Víkingum Sauð upp úr á blaðamannafundi Hollands á EM EM í dag: Kubbmót, bljúg bæn í kirkju og Lehmann í rassvasanum Hægt að fá hjónabandssælu á EM „Vitum hvað það var sem að klikkaði“ Fimmta flokks stelpur með sterk skilaboð til Sviss Liverpool borgar fjölskyldu Jota það sem hann átti eftir af samningnum Þurfti að forgangsraða í lífinu og landsliðið fékk að víkja „Fullkomið kvöld“ þegar Chelsea fór áfram í undanúrslit HM Glódís með á æfingu Tími Söndru eftir barnsburð og meiðsli: „Trúi og vona að þetta verði mitt mót“ Óvissan tekur við hjá Hákoni Tryggði sig inn á Opna breska risamótið með mögnuðum erni Sjá meira
Kynning á keppendum: Ætlar að syngja Phil Collins á meðan á hlaupinu stendur Íslensku ofurhlaupararnir sem keppa í heimsmeistaramóti landsliða í bakgarðshlaupi um helgina koma úr ýmsum áttum og búa allir að gríðarlega mikilli hlaupareynslu. 12. október 2022 08:00
Kynning á keppendum: Ekki vera lúser og treystu ferlinu Íslensku ofurhlaupararnir sem keppa í heimsmeistaramóti landsliða í bakgarðshlaupi um helgina koma úr ýmsum áttum og búa allir að gríðarlega mikilli hlaupareynslu. 11. október 2022 13:59
Keppa um heimsmeistaratitil í beinni útsendingu úr Elliðaárdal Næstu helgi keppa fimmtán ofurhlauparar fyrir Íslands hönd í bakgarðshlaupi í Elliðaárdal. Ræst verður á sama tíma í þrjátíu og sjö löndum og hlaupið hring eftir hring þar til aðeins einn hlaupari stendur eftir. Hlaupið verður í beinni útsendingu hér á Vísi. 10. október 2022 17:01