Boðaði ekki til þingkosninga Atli Ísleifsson skrifar 4. október 2022 12:32 Mette Frederiksen í ræðustól danska þingsins í morgun. Danska þingið kom saman í morgun eftir sumarhlé. AP Danska þingið var sett í morgun eftir sumarhlé en fyrirfram bjuggust margir við að forsætisráðherrann Mette Frederiksen myndi nýta tækifærið í stefnuræðu sinni og boða til þingkosninga. Ekkert varð þó úr því.
Danskir fjölmiðlar segja að Frederiksen hafi þess í stað rætt um ástand heimsmála og þá sérstaklega stríðið í Úkraínu, skemmdarverkin á Nord Stream-leiðslunum í Eystrasalti og hækkandi orkuverð. Þar að auki ræddi hún um loftslags- og umhverfismál og hvernig Danmörk eigi að vera „grænt heimsveldi“. Fyrir stefnuræðu forsætisráðherrans hafði frjálslyndi miðjuflokkurinn Radikale Venstre sett forsætisráðherranum þá afarkosti að boða strax til þingkosninga eða þá að vantrauststillaga á hendur honum yrði lögð fram. Radikale Venstre hefur gagnrýnt Frederiksen harðlega vegna ákvörðunar stjórnar hennar að lóga öllum minkum í landinu til að stöðva útbreiðslu kórónuveirunnar. Rannsóknarnefnd komst að þeirri niðurstöðu að ákvörðunin hafi ekki staðist lög. Þingkosningar eiga að fara fram í Danmörku í síðasta lagi fyrir 3. júní á næsta ári, en forsætisráðherra getur flýtt kosningum standi vilji til þess.
Danmörk Þingkosningar í Danmörku Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Fleiri fréttir Helmingur atkvæða talinn og enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Sjá meira