Menning

KÚNST: Kvenlæga mýktin í forgrunni

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Júlíanna Ósk Hafberg fer eigin leiðir í listsköpun sinni er hún er viðmælandi í þessum þætti af Kúnst.
Júlíanna Ósk Hafberg fer eigin leiðir í listsköpun sinni er hún er viðmælandi í þessum þætti af Kúnst. Vísir/Vilhelm

Fjöllistakonan Júlíanna Ósk Hafberg er óhrædd við að fara eigin leiðir í sinni listsköpun og takmarkar sig ekki við ákveðinn listmiðil. Þegar henni fannst striginn farinn að hafa áhrif á flæði listsköpunarinnar tók hún málin í eigin hendur og fór sjálf að smíða striga og ramma. Júlíanna Ósk Hafberg er viðmælandi í nýjasta þætti af Kúnst.

Hér má sjá þáttinn:

Klippa: KÚNST - Júlíanna Ósk Hafberg

„Ég byrjaði rosa mikið að mála og svo fór ég að færast yfir í einhverjar hugsanir um þennan staðlaða striga. Hann er svo kassalaga, fernhyrntur og hornréttur sem stangast á við þessa kvenlægu mýkt og náttúrulegu form þannig að ég fór að byrja að smíða mína eigin ramma og striga í þessum flæðandi línum sem eru svolítið kennimerki hjá mér sem ég hef verið lengi að stunda.“

Júlíanna Ósk Hafberg við störf.Vísir/Vilhelm

Júlíanna Ósk er með bakgrunn í fatahönnun og textíl sem lætur á sér bera í verkum hennar þar sem handverk og myndlist dansa saman á einstakan hátt. Hún hefur síðastliðna tvo mánuði rekið opna vinnustofu á Bankastræti 12 þar sem gestir og gangandi geta skoðað tilbúin verk og verk í vinnslu ásamt því að ná stundum að fylgjast með listakonunni að störfum.

Þættirnir KÚNST með Dóru Júlíu rannsaka hinar ýmsu víddir listsköpunar, ólíka listmiðla og sköpunargleði hjá íslenskum samtíma listamönnum ásamt því að fá að skyggnast bak við tjöldin og heyra um persónulegt líf þeirra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×