Real Madrid enn með fullt hús stiga eftir sigur í borgarslagnum

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Real Madrid er enn með fullt hús stiga eftir sigur kvöldsins.
Real Madrid er enn með fullt hús stiga eftir sigur kvöldsins. Fermin Rodriguez/Quality Sport Images/Getty Images

Real Madrid er enn með fullt hús stiga í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu eftir góðan 1-2 útisigur gegn nágrönnum sínum í Atlético Madrid.

Það var Rodrygo sem kom gestunum í forystu með marki á 18. mínútu leiksins eftir stoðsendingu frá Aurelien Tchouameni áður en Federico Valverde sá til þess að Real Madrid fór með 0-2 forystu inn í hálfleikinn með marki tíu mínútum fyrir hlé.

Þannig var staðan lengst af í síðari hálfleik. Varamaðurinn Mario Hermoso minnkaði þó muninn á þegar um sjö mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma.

Það var þó ekki það eina sem Hermoso gerði eftir að hafa komið inn á sem varamaður á 72. mínútu. Eftir að hafa verið inni á vellinum í rétt rúmar tíu mínútur skoraði hann þetta mark, nældi sér svo í gult spjald þremur mínútum síðar og endaði leikinn á því að næla sér í annað gult spjald og þar með rautt í upphafi uppbótartímans.

Heimamenn léku því seinustu mínúturnar manni færri og gestirnir í Real Madrid tryggðu sér góðan 1-2 sigur.

Real Madrid trónir því enn á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar með 18 stig af 18 mögulegum í fyrstu sex umferðurm deildarinnar. Atlético Madrid situr hins vegar í sjöunda sæti með tíu stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira