Ísak Bergmann Jóhannesson, leikmaður FCK, var í byrjunarliði liðsins í 0-0 jafntefli gegn Sevilla í Meistaradeild Evrópu í kvöld.
Ísak lék í 87. mínútur áður en honum var skipt af velli. Hákon Arnar Haraldsson byrjaði á varamannabekknum en kom inn á leikvöllinn á 79. mínútu á meðan Orri Steinn Óskarsson var allan tímann á varamannabekk FCK.
Enginn mörk voru skoruð í leiknum sem lauk með 0-0 jafntefli. FCK og Sevilla eru því bæði með aðeins eitt stig eftir tvær umferðir í G-rðili, tveimur stigum á eftir Dortmund í öðru sæti og fimm stigum á eftir Manchester City sem er í fyrsta sæti.