Lífið

Kúrekastígvél og cargo buxur það allra heitasta

Elísabet Hanna skrifar
Vinkonurnar Elísabet Gunnarsdóttir og Andrea Magnúsdóttir vita meira um tísku en flestir.
Vinkonurnar Elísabet Gunnarsdóttir og Andrea Magnúsdóttir vita meira um tísku en flestir. Aðsend.

Tískugyðjan Elísabet Gunnarsdóttir var stödd á tískuvikunni í Kaupmannahöfn og deilir með lesendum Vísis þeim trendum sem stóðu upp úr á tískupöllunum. Það kemur eflaust einhverjum á óvart að cargo buxur, kúreka stígvél og mini pils eru þar hæst á lista.

Alba Mist og Gunnar Manuel skemmtu sér vel að skoða tískuna.Aðsend.
Elísabet á tískusýningu GANNI sem var haldin undir berum himni líkt og fleiri sýningar þetta árið.Aðsend.
Verslunareigendur flykkjast á tískuvikuna til þess að taka inn nýjar vörur.Aðsend.
Elísabet Gunnarsdóttir er glæsileg en hún er komin rúma sjö mánuði á leið með sitt þriðja barn.Aðsend.
Líður eins og hún sé komin heim.Aðsend.
Hún segir það geggjað að geta hoppað í sjóinn með börnunum eftir langan dag.Aðsend.
Alltaf með puttann á púlsinum.Aðsend.

„Það er smá verið að ögra í tískunni núna. Ég hef verið að vinna eftir basic er best en fólk er að þora meira núna en það var hér áður,“ segir Elísabet um tískuna. Hún segir hana sífellt ganga í hringi og nú sé greinilega kominn tími fyrir cargo buxur, kúreka stígvél og mini pils að koma aftur.

Gaman að hafa börnin með

Hún nýtur sín einstaklega vel í Kaupmannahöfn og segir tískuvikuna hafa verið afburða góða: „Rosalega vel heppnuð tískuvika gaman að geta twistað saman við smá frí eftir að maður var búin að upplifa vikuna. Framlengdum aðeins, elskum þetta land og veðrið er ekki að skemma,“ segir hún en þau fjölskyldan framlengdu dvölina eftir tískuvikuna. 

Elísabet tók með sér börnin sín í fyrsta skipti á viðburðinn og fannst það dásamleg upplifun að hafa þau með í ferðinni: „Það er búið að vera æðislegt veður og það er geggjað að geta kastað sér í sjóinn með börnunum eftir langan dag, eins og það á að vera. Kannski er það sem koma skal að sameina þetta tvennt.“


Tengdar fréttir

Húkkaði sér far með spíttbát á tískusýninguna

Tískugyðjan og Trendnet bloggarinn Elísabet Gunnarsdóttir lenti í því skemmtilega atviku að húkka sér far með spíttbát á tískusýningu GANNI í Kaupmannahöfn þar sem hún er stödd fyrir tískuvikuna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×