Fótbolti

Daníel lék allan leikinn í tapi

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Daníel Leó Grétarsson og félagar þurftu að sætta sig við tap í kvöld.
Daníel Leó Grétarsson og félagar þurftu að sætta sig við tap í kvöld. Alex Nicodim/NurPhoto via Getty Images

Daníel Leó Grétarsson lék allan leikinn í hjarta varnarinnar hjá Slask Wroclaw er liðið mátti þola 3-1 tap gegn Korona Kielce í pólska fótboltanum í kvöld.

Heimamenn í Kielce tóku forystuna eftir rúmlega 25 mínútna leik og tíu mínútum fyrir hálfleik var staðan orðin 2-0.

Daníel og félagar minnkuðu muninn snemma í síðari hálfleik, en heimamenn gulltryggðu 3-1 sigur með marki í uppbótartíma.

Bæði Kielce og Slask Wroclaw hafa nú fjögur stig eftir fyrstu þrjár umferðir deildarinnar. Bæði lið hafa unnið einn leik, tapað einum og gert eitt jafntefli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×