England Evrópumeistari í fyrsta sinn

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Sigurmarkinu fagnað
Sigurmarkinu fagnað vísir/Getty

England er Evrópumeistari í knattspyrnu í fyrsta sinn eftir sigur á áttföldum Evrópumeisturum Þjóðverja á Wembley í London í kvöld.

Enska liðið hefur spilað frábærlega á mótinu sem hefur farið fram á Englandi undanfarnar vikur og þær mættu ákveðnar til leiks á Wembley í dag.

Talsvert jafnræði var þó með liðunum í fyrri hálfleik án þess að liðin næðu að skora og staðan í hálfleik því 0-0. Þýska liðið varð fyrir áfalli í upphitun því ein skærasta stjarna liðsins, Alexandra Popp, meiddist í upphitun.

Ella Toone kom inn af varamannabekk Englands snemma í síðari hálfleik og hún sá um að ná forystunni fyrir enska liðið þegar hún slapp í gegn eftir sendingu Keiru Walsh á 62.mínútu og kláraði færið sitt af stakri snilld.

Þjóðverjum gekk illa að finna leið framhjá þéttum varnarmúr heimakvenna en á 79.mínútu fann Lina Magull leiðina og jafnaði metin. Bæði lið spiluðu í kjölfarið nokkuð varfærnislega og fór að lokum svo að framlengja þurfti leikinn.

Þar reyndust ensku ljónynjurnar sterkari og annar varamaður, Chloe Kelly, var fyrst að átta sig í vítateig Þjóðverja eftir hornspyrnu á 110.mínútu og skoraði það sem reyndist sigurmark leiksins.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira