Sport

Michael van Gerwen vann eftir frábæran leik

Hjörvar Ólafsson skrifar
Michael van Gerwen var í essinu sínu í kvöld. 
Michael van Gerwen var í essinu sínu í kvöld.  Vísir/Getty

Michael van Gerwen bar í kvöld sigur úr býtum þegar hann mætti Gerwyn Price í úrslitaleik á Betfred World Matchplay sem fram fór í Winter Gardens í Blackpool í kvöld.

Hollendingurinn náði 121 stigum í síðustu kastseríu sinni en hann tryggði sér sigurinn með því að hitta í miðju píluspjaldsins. Lokatölur í leiknum urðu 18-14 Michael van Gerwen í vil.  

Þetta er í þriðja skipti sem Michael van Gerwen fer með sigur af hólmi í þessu móti. Phil Tayler er lang sigursælasti pílukastari í sögu mótsins en hann hefur borið sigurorð á því 16 sinnum, síðast árið 2017. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×