Evrópu­meistararnir gerðu jafn­tefli við Svía í fyrsta leik

Atli Arason skrifar
Hollendingar náðu ekki að sigra Svía
Hollendingar náðu ekki að sigra Svía Pim Waslander/Getty Images

Svíþjóð og Evrópumeistarar Hollands gerðu 1-1 jafntefli í fyrsta leik liðanna á EM í Englandi 2022. Leikið var í C-riðli.

Á 36. mínútu skoraði Svíþjóð eftir laglegan undirbúning Kosovare Asllani sem klobbar Aniek Nouwen, varnarmann Hollands, út á hægri væng og kemur boltanum á Jonna Andersson sem var ein og óvölduð inn í vítateig Hollendinga og skoraði nokkuð þægilega fyrsta mark Svíþjóðar á EM 2022.

Svíar voru marki yfir í hálfleik en stuttu eftir að síðari hálfleikurinn hófst þá jafna Hollendingar leikinn.

Jill Roord skoraði þá með skoti við enda vítateigslínu Svía. Boltinn barst óvænt til hennar af varnarmanni Svía eftir afar skemmtilegt uppspil Hollendinga þar sem Vivianne Miedema spilaði stóra rullu.

Bæði lið fengu ágætis tækifæri til að skora sigurmarkið. Síðasta færi leiksins féll í skaut Svía þegar Asllani tekur hornspyrnu hægra megin sem endar þó í fangi Van Domselaar, varamarkverði Hollendinga, sem kom inná leikvöllinn á 22. mínútu eftir að aðalmarkvörður liðsins, Van Veenendaal, þurfti að fara meidd af leikvelli.

Lokatölur 1-1 og öll liðin í C-riðli eru því jöfn að stigum eftir fyrstu umferð riðilsins.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira