Erlent

Rússar halda uppi stöðugum árásum á íbúðahverfi

Heimir Már Pétursson skrifar
Þessi kona er ein af mörgum sem særðust í eldflaugaárás Rússa á íbúðahverfi í Kramatorsk í dag. Hún veit greinilega ekki af því að Putin og hersveitir hans ráðast ekki á almenna borgara.
Þessi kona er ein af mörgum sem særðust í eldflaugaárás Rússa á íbúðahverfi í Kramatorsk í dag. Hún veit greinilega ekki af því að Putin og hersveitir hans ráðast ekki á almenna borgara. AP/Nariman El-Mofty

Rússar halda uppi stöðugum árásum á borgir og bæi í Donetsk héraði í austurhluta Úkraínu. Forseti Úkraínu segir hersveitir landsins sækja fram í suðurhlutanum og langþráð þungavopn frá Vesturlöndum hafi náð að valda miklu tjóni hjá rússneska innrásarliðinu.

Grafík/Kristján

Undanfarna viku hafa Rússar beitt öllum sínum hernaðarmætti til að ná yfirráðum yfir þeim helmingi Donestsk héraðs sem Úkraínumenn ráða enn yfir. Þeir halda jafnframt uppi stöðugum stórskotaliðs-, eldflauga- og loftárásum á borgir og bæi víða annars staðar í Úkraínu.

Fjölbýlis hús í rústum eftir árás Rússa á íbúðabyggð í borginni Kharkiv.AP/Evgeniy Maloletka

Rússar leggja mikla áherslu á að ná borgunum Slovyansk og Kramatorsk í norðurhluta Donetsk á sitt vald en stjórnsýsla héraðsins hefur verið í Kramatorsk frá því Rússar innlimuðu Krímskaga og skæruhernaður stuðningsmanna Rússa hófst í héraðinu árið 2014.

Einn maður féll og fjöldi fólks særðist þegar Rússar skutu eldflaug á íbúðahverfi í Kramatorsk í morgun. Miklar skemmdir urðu á húsum í nágrenninu og stór gígur myndaðist í bakgarði við fjölbýlishús.

Youri sat heima í íbúð sinni með eiginkonunni þegar eldflauginn sprakk.

„Þetta var svo stór sprenging að við konan mín, sem sátum inni, fundum hvernig allt þeyttist upp í loftið. Hún kastaði sér á gólfið og byrjaði að skríða. Við heyrðum ekki neitt fljúga yfir. Ég veit ekki hvort þetta sprakk af sjálfu sér en sprengingin var svo öflug að allar gluggarúðurnar brotnuðu,“ segir Yuri.

Nafni forsetans á sjötugsaldri, Volodymyr, neitar að yfirgefa íbúð sína þótt hún sé varla íbúðarhæf eftir árásina.

Hinn 66 ára gamli Volodymyr alblóðugur í stórskemmdri íbúð sinni eftir eldflaugaárás Rússa á íbúðahverfi í Kramatorsk í dag.AP/Nariman El-Mofty

„Ég sat bara og drakk te og þá varð þessi sprenging. Þið sjáið afleiðingarnar,“ sagði Volodymyr alblóðugur og í áfalli í íbúð sinni í dag.

Hin níutíu og eins árs gamla Iraida Vorobiova er meðal margra sem flúið hafa Sloviansk og fóru með lest til Dnipro sem enn er á valdi Úkraínumanna.

Iraida Vorobiova var 14 ára þegar seinni heimsstyrjöldinni lauk og man allar þær hörmungar sem henni fylgdu fyrir íbúa Úkraínu. Nú er hún 91 árs á flótta undan innrás Rússa.AP

„Ástandið í Sloviansk er mjög slæmt. Það er ekkert vatn, ekkert gas. Það er ekki einu sinni hægt að sækja vatn í brúsum, það virðist hvergi vera hægt að fá vatn. Og við getum ekki farið út vegna stöðugra sprengjuárása,“ sagði Vorobiova í lestinni á leið til Dnipro.

Volodymyr Zelenskyy forseti Úkraínu heitir því að rússneskar hersveitir verði ekki í Úkraínu til langframa og yfirburðir stórskotaliðssveita þeirra vari ekki að eilífu nú þegar vestræn þungavopn hafi loks borist Úkraínumönnum.AP/Ludovic Marin

Volodymyr Zelsnskyy Úkraínuforseti segir að þungavopn sem loks hafi borist frá Vesturlöndum hafi valdið Rússum miklu skaða og hjálpað úkraínuher til sóknar í suðurhluta landsins.

„Innrásarliðið ætti hvorki að halda að það verði í landinu til langframa né að yfirburðir stórskotaliðs þess vari að eilífu,“ sagði Zelenskyy í ávarpi til þjóðarinnar í gærkvöldi.


Tengdar fréttir

Vestræn þungavopn loks farin að draga úr mætti Rússa

Forseti Úkraínu segir að langþráð þungavopn frá Vesturlöndum séu loksins farin að skila árangri í baráttunni við rússneska innrásarliðið. Úkraínskar hersveitir sæki fram gegn Rússum í suðurhluta landsins. Hörðustu bardagarnir fari þó fram í austurhlutanum þessa dagana.

Hafa náð að standa af sér árásirnar hingað til

Úkraínski herinn hefur náð að standa af sér árásir Rússa á borgina Slóvíansk í austurhluta Úkraínu. Rússar hafa skotið á borgina í um það bil tvær vikur segir Vadym Lyakh, borgarstjóri Slóvíansk.

Rússar byrjaðir að innlima hluta Úkraínu í Rússland

Rússar beita öllum hernaðarmætti sínum þessa dagana til að ná Donetsk héraði á sitt vald og hefur héraðsstjórinn þar skorað á íbúa að flýja til vesturs. Evrópusambandið býst við að Rússar skrúfi brátt alfarið fyrir gas til aðildarríkjanna.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×