Enski boltinn

Beðið eftir að Arsenal staðfesti endanlega Gabriel Jesus

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Gabriel Jesus fagnar einu marka sinna fyrir Manchester City þar sem hann spilaði í fimm ár.
Gabriel Jesus fagnar einu marka sinna fyrir Manchester City þar sem hann spilaði í fimm ár. Getty/Simon Stacpoole

Gabriel Jesus kláraði læknisskoðun hjá Arsenal og allt er klárt milli Manchester City og Arsenal samkvæmt heimildum eins mesta skúbbara fótboltans í dag.

Fabrizio Romano segir frá því á samfélagsmiðlum sínum að læknisskoðun Gabriel Jesus hafi gengið vel í London.

Arsenal mun borga Manchester City 45 milljónir punda fyrir brasilíska framherjann og Jesus skrifar undir samning til ársins 2027.

Framherjarnir Alexandre Lacazette og hafa yfirgefið Arsenal á síðustu mánuðum og því þurfti Mikel Arteta að finna nýjan sóknarmann.

Hann fann hann í gömlum lærisvein því Arteta var áður aðstoðarmaður Pep Guardiola hjá Manchester City.

Gabriel Jesus er 25 ára og hefur spilað með City frá árinu 2017. Hann skoraði 58 mörk í 159 leikjum í ensku úrvalsdeildinni fyrir liðið þar af 8 mörk í 28 leikjum á síðustu leiktíð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×