Lífið

Stjörnulífið: Ný sambönd, barneignir og lýðveldið Ísland

Elísabet Hanna skrifar
Ástin, barneignir og þjóðhátíðardagurinn voru í aðalhlutverki síðustu vikuna.
Ástin, barneignir og þjóðhátíðardagurinn voru í aðalhlutverki síðustu vikuna. Samsett/Instagram

Samfélagsmiðlarnir voru logandi síðustu vikuna þar sem greint var frá nýjum samböndum, Gríman fór fram, barneignir voru tilkynntar, afmælisfögnuðir voru haldnir og Íslendingar flykktust til útlanda.

Brynjólfur Löve Mogensson hefur fundið ástina í faðmi Rebekku Daðadóttur og vitnaði hann í hina geisivinsælu raunveruleikaþætti Love Island þegar hann tilkynnti um sambandið. Það gerði hann með mynd af þeim í fríi á Ítalíu og hinum frægu orðum: A new bombshell enters the villa.

Leikkonan Aldís Amah átti langa, ljúfa og vel stressandi helgi með ástinni sinni Kolbeini Arnbjörnssyni.

Bubbi Morthens situr ekki auðum höndum og er búinn að tilkynna að nýtt lag sé væntanlegt.

Áhrifavaldurinn og verkfræðingurinn Katrín Edda Þorsteinsdóttir á von á stúlku með eiginmanni sínum Markúsi Waaser­baech. Þau hafa staðið í baráttu við ófrjósemi sem hún ræddi á Instagram miðli sínum og leynir gleðin sér ekki. 

Það er engin gúrkutíð hjá raunveruleikastjörnunum Bassa Maraj og Binna Glee.

Hjónin Ingileif Friðriksdóttir og María Rut Kristinsdóttir gátu látið draum unglingsins um að sjá átrúnaðargoðin sín rætast.

Uppistandarinn Jakob Birgisson og Sólveig Einarsdóttir í sínu fínasta pússi í þreföldu þrítugsafmæli tónlistarmannanna Loga Pedro, Joey Christ og Sturlu Atlas.

Pétur Kiernan var einnig mættur í afmælið, glæsilegur að vanda.

Útvarpsmaðurinn Egill Ploder fagnaði sínu fyrsta afmæli sem faðir með syni sínum Patrik Ploder.

Birgitta Líf Björnsdóttir naut þess að kanna New York með öðrum LXS píum áður en hún skellti sér á bakvið barinn á Bankastræti Club. 

Pattra Sriyanonge var mætt til Spánar á La Finca Resort þar sem hún fagnaði ástinni með Hólmfríði Björnsdóttur og Jóhanni Berg Guðmundssyni sem giftu sig þar.

Dansarinn Tara Sif Birgisdóttir útskrifaðist sem löggiltur fasteignasali og gæti því tekið þátt í íslenskri útgáfu af Selling Sunset ef til þess kemur í framtíðinni.

Fyrrum fótboltamaðurinn og fyrirsætan Rúrik Gíslason hefur það notalegt í sólinni.

Leikarinn Jóhannes Haukur mætti í bæinn til þess að fagna lýðveldinu.

Trendnet bloggarinn Elísabet Gunnarsdóttir átti öðruvísi þjóðhátíðardag í New York.

Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherrann Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir tók sig vel út í þjóðbúningnum.

Söngkonan Svala Björgvinsdóttir var ekki í þjóðbúningnum en hélt uppi stuðinu og skemmti fólki á 17. júní.

Grínistinn Guðmundur Felixson gerði Þuríði Blæ stolta á Grímunni þar sem hann var kynnir ásamt Vigdísi Hafliðadóttur.

Söngkonan Bríet fór beint upp á þak á Grímunni.

Salka Valsdóttir fagnaði sigri á Grímunni í T-streng sem mamma hennar saumaði á hana. 

Crossfit stjarnan Sara Sigmundsdóttir er byggja sig upp í kjölfar meiðsla.

Logi Pedro fór til Portúgals með fallegu fjölskyldunni sinni áður en hann fagnaði afmælinu.

Áhrifavaldurinn og dansarinn Ástrós Traustadóttir fékk koss frá ástinni sinni áður en þau héldu í útskriftir helgarinnar.

Áhrifavaldurinn Sunneva Einarsdóttir er komin heim úr lúxusnum í New York.

Áhrifavaldurinn Jóhanna Helga Jensdóttir er með Mallorca á heilanum.

Þjálfarinn Sandra Björg Helgadóttir hitti Manny Khoshbin á bílasýningu í Los Angeles þar sem hún býr.

Þjálfarinn Indíana Nanna er skotin í sínum manni Finni Orra.

Fanney Ingvarsdóttir er á ferðalagi um landið með fjölskyldunni sinni og nýta þau hvert tækifæri til þess að skapa minningar.

Íþróttafréttakonan Kristjana Arnarsdóttir er spennt að hitta litla ungann sinn.

Áhrifavaldurinn Erna Kristín mætti með klappliðið á fótboltamót.

Fótboltamaðurinn Alfreð Finnbogason þakkaði liðinu sínu fyrir öll árin saman en hann leitar nú á ný mið.

Embla Wigum nýtti förðunarhæfileikana til þess að breyta sér í regnboga djöful.

Áhrifavaldurinn Tanja Ýr ákvað að breyta aðeins til og fékk sér topp.


Tengdar fréttir

Stjörnulífið: Löng helgi, trúlofanir og allir að njóta

Helgin var löng og virðast flestir hafa gripið tækifærið til þess að gera eitthvað skemmtilegt. Bubbi fagnaði afmælinu sínu, listamenn héldu tónleika, margir skelltu sér í hlaup, börnin völdu sitt uppáhalds fólk og Íslendingarnir voru líka duglegir að ferðast.

Stjörnulífið: Sólardagar, útskriftir og Írafár

Sólin gladdi Íslendinga um helgina en margir eru þó á faraldsfæti. Áhrifavaldaferð í spilavíti í Tallin, Írafárstónleikar, sólarmyndir og útskriftir tóku yfir samfélagsmiðlana síðustu daga. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×