Lífið

Stjörnulífið: Löng helgi, trúlofanir og allir að njóta

Ása Ninna Pétursdóttir og Elísabet Hanna skrifa
Það er alltaf gott að fá langa og góða helgi.
Það er alltaf gott að fá langa og góða helgi. Samsett/Instagram

Helgin var löng og virðast flestir hafa gripið tækifærið til þess að gera eitthvað skemmtilegt. Bubbi fagnaði afmælinu sínu, listamenn héldu tónleika, margir skelltu sér í hlaup, börnin völdu sitt uppáhalds fólk og Íslendingarnir voru líka duglegir að ferðast.

Bubbi Morthens fagnaði 66 ára afmæli sínu þann 6. júní í gær með einstakri sýningu af Níu Líf. Salurinn söng afmælissönginn fyrir hann og leikhúsið færði honum sérstaka rós í garðinn sinn. Vinir og fjölskylda voru komin til þess að fagna með honum og voru Ari Eldjárn og Eyþór Ingi með uppistand um kónginn fyrir sýninguna.

Steiney Skúladóttir er vinsæl hjá börnunum líkt og öðrum.

Fótboltakonan Hallbera Gísladóttir kláraði skólann og er alsæl með það í Svíþjóð.

Hengill Ultra hlaupið fór fram og gekk Rakel Maríu mjög vel í miðnæturhlaupinu.

Davíð Rúnar Bjarnason hljóp 168 kíló­metra á 31 klukku­stund og tók síðasta spölinn með syni sínum en hann var eini keppandinn sem lauk þeirri vegalengd.

Color run fór líka fram og máluðu Eva Ruza og Gústi B dalinn rauðann .

Stórstjarnan Páll Óskar fagnaði á útgáfutónleikum með Birni og félögum.

Klara Elíasdóttir hefur frumflutt þjóðhátíðarlagið 2022 sem heitir Eyjanótt og hún samdi ásamt Ölmu Guðmundsdóttur og flytur sjálf. Hún er aðeins önnur konan í sögu Þjóðhátíðar í Eyjum til þess að fá það hlutverk að gefa út Þjóðhátíðarlagið.

Söngkonan Jóhanna Guðrún er að byrja í spennandi verkefni sem virðist fara fram á sviði og verður spennandi að sjá um hvaða sýningu er að ræða.

Auðunn Blöndal og mágur hans, fótboltamaðurinn Óskar Örn, tóku það að sér, ásamt sínum betri helmingum, að fjölga mannkyninu síðustu ár. 

Söngkonan Svala Björgvins er heimakær í Hörpu þar sem hún kom fram um helgina.

Jökull söngvari Kaleo og Thelma kærasta hans til margra ára eru trúlofuð. Rómantíkin virðist hafa verið í loftinu og má sjá rósablöð og kampavín þar sem skálað var fyrir ástinni.

Eva Laufey hlaut þann mikla heiður að vera sjónvarpsstjarna ársins á Sögur verðlaunahátíð bananna og fagnaði því með dætrum sínum.

Áhrifavaldurinn Fanney Ingvarsdóttir fagnaði útskrift með mini MBA gráðu sem stafrænn markaðssérfræðingur og nýrri vinnu hjá BIOEFFECT. Það er eflaust tilefni til þess að segja „spennandi tímar framundan“.

Gulli virðist ekki bara byggja upp hús heldur líka góða fjölskyldu og fagnar hann syni sínum sem á afmæli í dag. 

Birgitta Líf og kærastinn hennar Enok kíktu í brúðkaup þar sem ástin skein af þeim.

Aron Can naut lífsins með góðum mat og góðu fólki í sólinni.

Það sama má segja um Flóna sem er á Krít.

Crossfit stjarnan Annie Mist segir sársauka og þjáningu vera jarðveg styrks og hugrekkis.

Sunneva Einars fylgir öldunum og sólinni á Mallorca.

Leikkonan Unnur Eggertsdóttir tók sína fyrstu æfingu síðan hún fæddi sitt dóttur sína fyrir tæpum þremur mánuðum. Hún segist aldrei hafa elskað líkama sinn meira en núna.

Áhrifavaldarnir Lína Birgitta og Gummi kíró rölta um erlendar götur og gera þær að sínum eigin tískupalli.

Leikarinn Aron mola er sáttur með sumarið en ekki hversu fljótt dagarnir líða.

Þórdís Kolbrún R. Gylfadottir utanríkisráðherra ræktaði ástina þessa löngu helgi.

Skóhönnuðurinn og áhrifavaldurinn Andrea Röfn Jónasdóttir var að njóta sín með fallegu óléttubumbuna.

Með Andreu var áhrifavaldurinn og Trendnet bloggarinn Elísabet Gunnarsdóttir.

Brynja Dan var í sumarpartý aldarinnar.

Donna Cruz er að „víbra og lifa“ á Portúgal.

Förðunarfræðingurinn Agnes Björgvinsdóttir sendi fylgjendum sínum póstkort frá París þar sem hún er búin að vera að kynnast borginni.

Áhrifavaldurinn Ída Pálsdóttir gefur reglulega innsýn í líf fjölskyldunnar í Kyoto.

Söng- og leikkonan Þórdís Björk dýrkar New York og unnusta sinn Júlí Heiðar.

Manuela Ósk er tilbúin í næstu Miss Universe Iceland keppnina.


Tengdar fréttir

Jökull í Kaleo og Thelma trúlofuð

Jökull Júlíusson söngvari Kaleo og kærasta hans til margra ára Telma Fann­ey Magnús­dótt­ir eru trúlofuð. Samkvæmt færslu frá Thelmu á Instagram var stóra spurningin borin upp þann 24. maí og var svarið við henni auðvelt fyrir hana, já.

Stjörnulífið: Sólardagar, útskriftir og Írafár

Sólin gladdi Íslendinga um helgina en margir eru þó á faraldsfæti. Áhrifavaldaferð í spilavíti í Tallin, Írafárstónleikar, sólarmyndir og útskriftir tóku yfir samfélagsmiðlana síðustu daga. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×