Vandræði Englendinga halda áfram

Valur Páll Eiríksson skrifar
Roland Sallai skoraði tvö fyrir Ungverja í kvöld.
Roland Sallai skoraði tvö fyrir Ungverja í kvöld. Catherine Ivill/Getty Images

Enska landsliðið í knattspyrnu er enn án sigurs í 3. riðli A-deildar Þjóðadeildarinnar eftir 0-4 tap gegn Ungverjum á heimavelli í kvöld.

Roland Sallai kom Ungverjum yfir strax á 16. mínútu leiksins eftir vel útfærða aukaspyrnu sem Englendingum mistókst að hreinsa frá marki.

Þetta reyndist eina mark fyrri hálfleiksins og staðan því 0-1 þegar gengið var til búningsherbergja.

Roland Sallai var svo aftur á ferðinni þegar hann skoraði annað mark sitt og annað mark Ungverja á 70. mínútu leiksins eftir stungusendingu frá Martin Adam. Það var svo Zsolt Nagy sem gerði endanlega út um leikinn með marki rétt rúmum tíu mínútum fyrir leikslok.

Englendingar fóru úr öskunni í eldinn skömmu eftir þriðja markið þegar John Stones fékk að líta sitt annað gula spjald og þar með rautt fyrir litlar sakir. Daniel Gazdag virtist þá einfaldlega hlaupa á öxlina á Stones, en sá síðarnefndi fékk að fjúka.

Daniel Gazdag átti eftir að koma meira við sögu, en hann stráði salti í sár Englendinga þegar hann skoraði fjórða og seinasta mark Ungverja á 89. mínútu.

Niðurstaðan varð því 0-4 sigur Ungverja sem nú tróna á toppi riðilsins með sjö stig eftir fjóra leiki. Englendingar reka hins vegar lestina með tvö stig og hafa ekki enn unnið leik.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira