Tíska og hönnun

„Mér finnst að það eigi ekki að vera neinar reglur þegar kemur að tísku“

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Tískuáhugakonan Sóley Bjarna er viðmælandi í Tískutali.
Tískuáhugakonan Sóley Bjarna er viðmælandi í Tískutali. Aðsend

Plötusnúðurinn Sóley Þöll Bjarnadóttir er mikil áhugakona um tísku og er óhrædd við að fara eigin leiðir í klæðaburði. Sóley er fyrsti viðmælandi Tískutals.

Tískutal er fastur liður á Vísi þar sem rætt er við ólíka einstaklinga um þeirra persónulega stíl og hvernig tíska nýtist þeim í daglegu lífi. Klæðaburður er sannarlega fjölbreytt listform en við fáum að skyggnast inn í ólíka fataskápa og fræðast nánar um það merkilega tjáningarform sem tíska er fyrir hverjum og einum viðmælanda.

Hvað finnst þér skemmtilegast við tískuna?

Það sem mér finnst skemmtilegast við tískuna er það að hún er alltaf að breytast. Mér finnst svo gaman að fylgjast með hvað er í gangi í tískunni og hvað er að koma og fara en það fallega við hana er að allir ráða í hverju þeir eru og geta notað tískuna sem tól til þess að tjá skap, tilfinningar og persónuleika.

Hver er uppáhalds flíkin þín og af hverju?

Uppáhalds flíkin mín er vintage leðurkápa með loði sem ég eignaðist um daginn. Hún er rosalega tímalaus og passar við allt.

Uppáhalds flík SóleyjarAðsend

Eyðir þú miklum tíma í að velja föt hverju sinni?

Ég eyði ekki miklum tíma í að velja föt dags daglega, ég fer oftast bara í það sem er þægilegt, en þegar ég er að fara eitthvað út þá get ég alveg skipt um föt þrisvar áður en ég get ákveðið mig.

Hvernig myndir þú lýsa stílnum þínum?

Stílinn minn er mjög fjölbreyttur, ég myndi lýsa honum sem blöndu af nútímalegum og vintage. ég sæki mikinn innblástur í streetwear og 2000s tísku þessa dagana.

Hefur stíllinn þinn breyst mikið í gegnum tíðina og hvernig þá?

Stílinn minn hefur verið alveg út og suður í gegnum tíðina. Ég hef tekið alls konar tímabil í gegnum árin, sérstaklega í menntaskóla þegar ég var ennþá aðeins að finna mig.

Hvaðan sækirðu innblástur í tískunni?

Ég sæki mikinn innblástur frá fólkinu í kringum mig, samstarfskonum og vinkonum sérstaklega. Svo er ég mikið á Instagram, skoða þá helst skandínavískar skvísur sem eru oft með puttann á púlsinum þegar kemur að tísku.

Ertu með einhver boð og bönn þegar það kemur að klæðaburði?

Mér finnst að það eigi ekki að vera neinar reglur þegar kemur að tísku þannig ég reyni að fara eftir því.

Hver er eftirminnilegasta flík sem þú hefur klæðst og af hverju?

Ég mætti einu sinni í skólann í gallabuxum, gallabol og gallajakka. Það er mjög eftirminnilegt lúkk. Ég myndi sennilega ekki fara í það í dag en það var skemmtilegt á sínum tíma.

Býrðu yfir einhverju góðu ráði þegar það kemur að tísku?

Alltaf að treysta sinni eigin sannfæringu. 

Ekki hlusta á aðra, ef þér finnst eitthvað flott þá er það flott. 

Svo mæli ég klárlega með því að versla second hand, það er hægt að finna ótrúlegustu gersemar með smá gramsi og þolinmæði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×