Sport

Matthías Örn spilar gegn heimsmeistaranum

Atli Arason skrifar
Matthías Örn Friðriksson.
Matthías Örn Friðriksson. Vísir/Skjáskot

Matthías Örn Friðriksson mun mæta heimsmeistaranum í pílukasti, Peter Wright, strax í fyrstu umferð á PDC Nordic Masters-mótsins.

Dregið var í fyrstu umferð  rétt í þessu. Matthías er þrefaldur Íslandsmeistari í pílu og er fulltrúi Íslendinga á mótinu. Matthías gæti varla hafið leikinn á erfiðari mótherja en sjálfum heimsmeistaranum.

Matthías Örn verður fyrstur Íslendinga til að keppa á PDC Nordc Masters-mótinu í pílukasti. Leikið verður í Kaupmannahöfn og hefst mótið föstudaginn 10. júní næstkomandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×