Tíska og hönnun

Litadýrð, fjaðrir og gulir úlfar á túrkís dregli Eurovision

Sylvía Rut Sigfúsdóttir og Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifa
Keppendur Eurovision hittust allir í fyrsta skipti í opnunarhófi keppninnar í ítölskum kastala í gær.
Keppendur Eurovision hittust allir í fyrsta skipti í opnunarhófi keppninnar í ítölskum kastala í gær. Samsett/EBU

Opnunarhátíð Eurovision fór fram í Reggia di Venaria höllinni í Tórínó í gær. Allir keppendur gengu túrkísbláan dregil upp að höllinni fyrir viðburðinn og ræddu þar við fjölmiðla og heilsuðu aðdáendum sem höfðu stillt sér upp meðfram dreglinum.

Júrógarðurinn var auðvitað á staðnum og síðar í dag mun birtast þáttur um viðburðinn með viðtölum við keppendur og skemmtilegum augnablikum frá túrkís dreglinum. Hér fyrir neðan má sjá nokkra keppendur sem vöktu mikla athygli fyrir utan Reggia di Venaria í gær. 

Gulu úlfarnir voru skrautlegir á rauða dreglinum. Þeir töluðu eingöngu með handahreyfingum og höfðu mann með sér sem svaraði öllum spurningum blaðamanna.EBU
Cornelia Jakobs er talin sigurstrangleg á laugardag. Hún glitraði á dreglinum í gær og sagði okkur meðal annars að hún drekkur alltaf heitt te til að róa taugarnar áður en hún stígur á svið.EBU
Íslenski hópurinn Systur fékk mikið af hrósum fyrir litagleði í fatavali. Þau héldu fast í 70's glamúr stílinn sinn og voru ótrúlega flott á túrkísdreglinum.EBU
Hljómsveitin Systur var með áberandi skilaboð á viðburðinum.EBU
Úkraínsku Kalush Orchestra voru með mikið fylgdarlið með sér. Þeir leituðu skjóls undir tjaldi íslensku blaðamannanna þegar mesta rigningin gekk yfir og þökkuðu fyrir sig með því að skilja eftir svona bleika hatta eins og sá sem sést á myndinni. Allir voru þeir klæddir í svart.EBU
Circus Mircus fóru ekki framhjá neinum á túrkís dreglinum. Blómaskeggið vakti sérstaka athygli.EBU
Sam Ryder var klæddur í silfraðan samfesting og sagði innblásturinn fyrir fatavalinu vera að hann væri fljótari að gera sig tilbúinn í þessum samfesting, þar sem hann elskar að sofa út. TikTok stjarnan var einstaklega vinsæl hjá aðdáendum keppninnar sem mættir voru við túrkúsdregilinn.EBU
Citi Zēni frá Lettlandi voru algjör sjarmatröll á viðburðinum. Þeir gáfu sér góðan tíma til að spjalla við íslensku blaðamennina og sungu meðal annars Með hækkandi sól fyrrir okkur á túrkís dreglinum.EBU
Brooke keppandi Írlands í ár var í litríkum fjaðrakjól. Hún dansaði á túrkísdreglinum ásamt dönsurum sínum við mikinn fögnuð viðstaddra.EBU
Danska hljómsveitin REDDI var í ótrúlega skrautlegum drögtum og allar voru þær í eins hvítum skóm. Algjörir töffarar.EBU
Ástralski Shledon Riley fór ekki framhjá neinum á viðburðinum í gær. Díva með allt á hreinu!EBU
Malik Harris frá Þýskalandi sagði okkur á túrkís dreglinum að hann samdi lagið sitt eftir að hafa horft á þátt af The Office.EBU
Heimamennirnir Mahmood & Blanco gengu síðastir eftir túrkísdreglinum og gáfu sér góðan tíma til að spjalla við blaðamenn og leyfðu svo aðdáendum að taka sjálfsmyndir með sér.EBU
We Are Domi frá Tékklandi klæddust fötum frá fatahönnuði heimalands síns. Þau völdu að vera í fánalitunum sínum á túrkísdreglinum.EBU
The Ramus frá Finnlandi voru þvílíkir töffarar á opnunarhátíðinni, öll í svörtu.EBU
Chanel var stórglæsileg í eldrauðu með flæðandi skikkju sem drógst eftir dreglinum. Algjör stjarna á þessum viðburði.EBU
Chanel var með fríðu föruneyti hvítklæddra dansara sinna en Chanel er sjálf lærður dansari ásamt því að vera söngkona og leikkona.EBU
Achille Lauro keppandi San Marino vakti athygli fyrir fataval. Hann leyfði húðflúrum sínum að njóta sín.EBU

Við ræddum við íslensku keppendurna á viðburðinum í gær og má horfa á viðtalið hér fyrir neðan. Síðar í dag birtist svo sérstakur þáttur af Júrógarðinum um þennan skrautlega viðburð.

Sylvía Rut Sigfúsdóttir og Dóra Júlía Agnarsdóttir eru fulltrúar fréttastofunnar á Eurovision í Tórínó á Ítalíu. Munu þær birta fréttir, viðtöl, hlaðvörp og auðvitað líka reglulega þætti af Júrógarðinum. 

Alla umfjöllun okkar um Eurovision keppnina má finna HÉR á Lífinu á Vísi. 


Tengdar fréttir

„Við vissum ekkert hvað við værum að fara út í“

Systurnar Beta, Sigga og Elín Ey keppa í undankeppni Eurovision næstkomandi þriðjudagskvöld fyrir hönd okkar Íslendinga. Við settumst niður með þeim á krúttlegum ítölskum veitingastað og fengum aðeins að taka púlsinn fyrir Júrógarðinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×