Innlent

Sagði „nauðgunar­her“ vera á leið til sam­nemanda

Atli Ísleifsson skrifar
Áfrýjunarnefndin segir ekkert hafa komið fram í málinu af hálfu kæranda sem réttlæti eða afsaki háttsemina heldur virðist hann ganga út frá því í málatilbúnaði að hann hafi fullan rétt til þess að svívirða og ógna samnemendum sínum í skólanum án þess að unnt sé að grípa til viðurlaga af nokkru tagi.
Áfrýjunarnefndin segir ekkert hafa komið fram í málinu af hálfu kæranda sem réttlæti eða afsaki háttsemina heldur virðist hann ganga út frá því í málatilbúnaði að hann hafi fullan rétt til þess að svívirða og ógna samnemendum sínum í skólanum án þess að unnt sé að grípa til viðurlaga af nokkru tagi. Vísir/Vilhelm

Áfrýjunarnefnd í kærumálum háskólanema hefur staðfest ákvörðun sviðsstjóra Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands um að víkja nemanda við sálfræðideild skólans úr skólanum að fullu eftir að hann hafði sent samnemanda skilaboð sem metin voru „óforsvaranleg“, „ógnandi“ og „til þess [fallin] að valda [ótta].“

Málið hafði áður ratað inn á borð kærunefndar jafnréttismála sem úrskurðaði að skólinn hafi ekki gerst sekur um brot á lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna þegar nemandanum var vikið úr skólanum í nóvember síðastliðinn.

Vísir sagði frá málinu þegar búið var að birta úrskurð kærunefndar jafnréttismála, en í honum voru ummæli nemandans ekki tíunduð.

Í úrskurði áfrýjunarnefndar í kærumálum háskólanema eru ummælin hins vegar birt, en hinn brottrekni nemandi sendi samnemanda sínum þau í tölvupóstum. Í póstunum var meðal annars að finna eftirfarandi ummæli:

  • „Ég veit þú ert brjáluð, en ef þú hjálpar mér þá skal ég hjálpa þér“
  • „Ég skal hjálpa þér að læra fyrir prófið, annars fellur þú. Ég er nokkuð góður í stærðfræði. Ég skal ábyrgjast að þú nærð, annar [sic] mátt þú refsa mér eins og þér sýnist“
  • „Þær deyja“
  • „Þér er nauðgað ef þú segir mér hvernig?“
  • „Það er nauðgunarher á leiðinni til þín en þú verður að segja mér hvernig ég á að leysa heimadæmi níu og fjórtán þess í stað. Sendu mér línu fyrir næsta miðvd.“

Telur sig hafa fullan rétt til að svívirða og ógna samnemendum

Að mati nefndarinnar eru samskipti mannsins við samnemanda sinn í skólanum honum til vanvirðu og álitshnekkis. Með samskiptunum hafi maðurinn vegið gegn réttindum nemandans sem varin eru í stjórnarskrá.

„Þannig sendi kærandi t.a.m. þau skilaboð til samnemandans að „nauðgunarher“ væri á leiðinni til hennar auk fjölda annarra óviðeigandi og ógnandi skilaboða.

Ekkert hefur komið fram í málinu af hálfu kæranda sem réttlætir eða afsakar þessa háttsemi heldur virðist kærandi ganga út frá því í málatilbúnaði sínum að hann hafi fullan rétt til þess að svívirða og ógna samnemendum sínum í skólanum án þess að unnt sé að grípa til viðurlaga af nokkru tagi af því tilefni,“ segir í niðurstöðukafla úrskurðarins.

Ekki með ótakmarkað tjáningarfrelsi án afleiðinga

Áfram segir að nefndin bendi á að maðurinn hafi ekki slíkt ótakmarkað tjáningarfrelsi án afleiðinga. 

„Samkvæmt framangreindu stefndi sú takmörkun á tjáningarfrelsi kæranda, sem fólst í því að víkja honum úr skóla, að lögmætu markmiði, þ.e. að vernda virðingu skólans og vernda réttindi annars nemanda. Við ákvörðunina voru þannig uppfyllt skilyrði 3. mgr. 73. gr. stjórnarskrárinnar um lögmætt markmið, skerðingin var nauðsynleg og í samræmi við lýðræðishefðir. Í ljósi alvarleika ummælanna er það niðurstaða nefndarinnar að meðalhófs hafi verið gætt enda hafi vægari úrræði ekki verið tæk til þess að ná því markmiði sem stefnt var að,“ segir í niðurstöðukaflanum.

Ekki um vanhæfi að ræða

Maðurinn sakaði sviðsforseta Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands einnig um vanhæfi í málinu en áfrýjunarnefndin bendir á að það eigi ekki við í málinu enda sé Háskóli Íslands ekki dómstóll. Þá séu ekki til staðar tengsl eða aðstæður sem falli undir vanhæfisástæður stjórnsýslulaga. 

„Ekkert hefur komið fram í málinu um að málsmeðferð innan HÍ hafi verið ábótavant að öðru leyti. Verður hin kærða ákvörðun HÍ því staðfest,“ segir í dómnum.


Tengdar fréttir



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×