Innlent

Telur alvarlega krísu á stjórnarheimilinu

Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir þingmaður Viðreisnar segir að greinilegt að krísuástand sé í ríkisstjórn vegna sölunnar á Íslandsbanka. Þar vísar hún til orða Lilja Alreðsdóttur viðskiptaráðherra um söluna í Morgunblaðinu í dag. Katrín Jakobsdóttir forsætsiráðherra segir að málið hafi verið rætt í ráðherranefnd um efnahagsmál en ekkert hafi verið bókað.
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir þingmaður Viðreisnar segir að greinilegt að krísuástand sé í ríkisstjórn vegna sölunnar á Íslandsbanka. Þar vísar hún til orða Lilja Alreðsdóttur viðskiptaráðherra um söluna í Morgunblaðinu í dag. Katrín Jakobsdóttir forsætsiráðherra segir að málið hafi verið rætt í ráðherranefnd um efnahagsmál en ekkert hafi verið bókað. visir

Fjármálaeftirlitið hefur tekið söluna á Íslandsbanka til skoðunnar. Viðskiptaráðherra segir óeiningu hafa verið í ríkisstjórn um framkvæmdina en það var hvergi fært til bókar að sögn forsætisráðherra. Þingmaður stjórnarandstöðunnar segir krísuástand í ríkistjórn.

Gríðarleg gagnrýni hefur komið fram um framkvæmd útboðs á Íslandsbanka. Gagnrýnt hefur verið  að minnsta kosti tveir starfsmenn verðbréfamiðlunar Íslandsbanka sem sá um söluna keyptu líka í útboðinu. Það sama á við um fleiri söluaðila en stærsti eigandi Íslenskra verðbréfa keypti í útboðinu en fyrirtækið hélt utan um söluna. Verðið í útboðinu hefur verið gagnrýnt og hverjir fengu að kaupa. 

Fjármálaeftirlitið tilkynnti í dag að athugun á tilteknum þáttum sölunnar hafi hafist. Þá kunni fleira að verða skoðað. 

Fréttaastofa óskaði eftir viðtali við Lilju Alfreðsdóttur viðskiptaráðherra og varaformann Framsóknarflokksins í dag vegna málsins en hún vísaði til greinar í Morgunblaðinu sem birtist í dag.

Þar kveðst hún hafa verið mótfallin þeirri ákvörðun að selja hlut ríkisins í Íslandsbanka til valins hóps fjárfesta. Hún hafi komið þessum sjónarmiðum sínum skýrt á framfæri í aðdraganda útboðsins. Lilja segir einnig í samtali við blaðið að ábyrgðinni sé ekki hægt að skella alfarið á stjórnendur Bankasýslunnar; hún hljóti að liggja hjá stjórnmálamönnum í málinu. 

Fréttstofa óskaði eftir upplýsingum um hvar hún hafi komið þessum sjónarmiðum á framfæri og fékk þau skriflegu svör að hún hafi komið þeim á framfæri í ráðherranefnd um efnahagsmál þar sem hún situr ásamt forsætis-og fjármálaráðherra. 

Engar bókanir 

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir i í skriflegu svari til fréttastofu um málið í dag að umræður hafi verið um fyrirkomulag á sölunni meðal ráðherra.

Hins vegar hafi enginn ráðherra óska eftir að færa neitt til bókar. Hvorki þegar málið var rætt í ríkisstjórn né ráðherranefnd um efnahagsmál. 

Að sjálfsögðu voru umræður um fyrirkomulag á sölu hluta í Íslandsbanka þar sem ráðherrar lýstu skoðunum sínum. Mín afstaða hefur verið sú að ferlið yrði eins gagnsætt og skýrt og kostur væri, upplýsingargjöf væri góð og jafnframt lagði ég áherslu á að þingið fengi nægilegan tíma til að skoða málið enda taldi ég að það þyrfti hann til að kynna sér þessa aðferð. Ennfremur - að lokinni sölu - lagði ég mikla áherslu á birtingu lista kaupenda sem fjármálaráðherra birti um leið og hann barst ráðuneytinu.

Enginn ráðherra óskaði eftir að færa neitt til bókar. Hvorki þegar málið var rætt í ríkisstjórn né ráðherranefnd um efnahagsmál.

Ég styð eindregið að málið verði skoðað ofan í kjölinn og tel úttekt Ríkisendurskoðunar eðlilegt skref í þeirri skoðun.

Þá má bæta við að aldrei hefur staðið til að selja Landsbankann og það hefur legið fyrir frá því að ríkisstjórnin var mynduð í fyrra sinn. Ég tel eðlilegt að geyma allar frekari hugmyndir um sölu á hlutum í Íslandsbanka.

Krísuástand

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir þingmaður viðreisnar segir greinilega krísuástand á stjórnarheimilinu.

„Það eru stórpólitísk tíðindi ef að þessir þrír lykilráðherrar sem höfðu þessa bankasölu með höndum sáu þetta ekki sömu augum og að það hafi verið farið gegn hennar mati á því hversu skynsamleg leið þetta væri,“ segir Þorbjörg og á þar við viðskiptaráðherra. 

„ Ég get ekki ímyndað mér annað en að, það að viðskiptaráðherra tali um að hún telji ekki nóg að Bankasýslan sæti ábyrgð í málinu, heldur að hin pólitíska ábyrgð sé ráðherrans. Það er ekki oft sem við sjáum svona bein skot innan ríkisstjórnarinnar eins og í dag. Ég get ekki séð annað en að það sé mjög þungt andrúmsloft og alvarleg krísa á stjórnarheimilinu.  Forsætisráðherra og fjármálaráðherra þurfa að svara því skýrar hvort þetta sé rétt hjá viðskiptaráðherranum að hún hafi verið mótfallin því að fara þessa leið. Það skiptir ekki máli hvort það var bókað. Það skiptir líka máli að ef viðskiptaráðherra hafði þessa skoðun að almenningur er fyrst núna að heyra um málið,“ segir hún.  


Tengdar fréttir

Við­skipta­ráð­herra segist hafa gagn­rýnt á­form í nefnd með for­sætis- og fjár­mála­ráð­herrum

Viðskiptaráðherra segist ekki vera undrandi á þeirri gagnrýni sem salan á Íslandsbanka hefur hlotið síðustu daga. Ábyrgðin hjóti að liggja hjá stjórnmálamönnum sem tóku ákvörðun í málinu. Varaformaður efnahags-og viðskiptanefndar segir að framkvæmd útboðsins hafi verið allt önnur en Bankasýslan kynnti fyrir nefndinni. Framkvæmdastjóri Landssambands lífeyrissjóða segir mikilvægt að kanna hvort salan hafi farið fram á eðlilegan máta.

Eigendur og starfsmenn umsjónaraðila útboðs meðal kaupenda

Eigandi helmingshlutar í Íslenskum verðbréfum sem sá meðal annars um að selja hlut ríkisins í Íslandsbanka keypti fyrir tugi milljóna króna í bankanum. Starfsmaður verðbréfamiðlunar Íslandsbanka sem var líka umsjónaraðili útboðsins keypti hlut en er ekki talinn innherji að mati stjórnenda bankans.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×