Óskar Hallgrímsson og Mariika kona hans sem búa í miðborg Kænugarðs urðu vör við mikla byssubardaga í gærkvöldi og vöknuðu svo upp við mikinn sprengjuný snemma í morgun.
„Síðan klukkan fimm, vöknum við bæði við þvílíkar sprengingar og læti. Þetta var eins og þetta væri bara í garðinum hjá okkur. Húsið nötraði allt og skalf og hélt áfram. það var ekkert ein eða tvær, þetta var alveg tíu eða fimmtán eða eitthvað,“ segir Óskar.

Þau hjónin fóru inn á baðherbergi sem þau hafa einangrað sem einhvers konar loftvarnabyrgi. Óskar telur að mestur hávaðinn hafi komið frá loftvarnakerfi borgarinnar sem hafi gefist mjög vel frá því stríðið hófst að skjóta niður bæði rússnesk flugskeyti og orrustuþotur. Þær heimildir sem hann hafi segi að tekist hafi að skjóta niður allt að níutíu rússneskar þotur frá upphafi stríðsins.
Engu að síður tókst Rússum að hæfa íbúðarblokk þar sem einn maður lést og skemmdir urðu mjög miklar. Eftir stutt hlé segir Óskar að sprengjugnýrinn hafi byrjað aftur og staðið yfir í um tvær klukkustundir. Enn megi þó heyra í loftvarnaflautum og skothríð af og til.
Forsætisráðherrar Póllands, Tékklands og Slóvaníu ætla að eiga fund með Volodymyr Zelenskyy forseta Úkraínu í Kænugarði. Óskar segir þessa heimsókn og stuðning umheimsins skipta miklu máli.
Mikill baráttuandi í fólki
„Það er svakalegur baráttuandi hér. Fólk hefur svakaleg trú á hernum, ríkisstjórninni og fólk finnur þennan stuðning og meðbyr sem við erum að fá frá alþjóðasamfélaginu,“ segir Óskar. En auðvitað hafi ástandið í borgum eins og Mariupol, Kherson og Kharkiv mikil áhrif á fólk.
„Svakaleg sorg. Og auðvitað hræðir þetta fólk. Það er svo erfitt að tala um góðar fréttir í stríði. Það er svo erfitt að segja það var flott að þetta hafi gerst. En við erum náttúrlega í stríði. Maður sér desperatsjónina í Rússunum. Þeir eru farnir að ráðast svona á almenna borgara til að reyna að draga niður móralinn í fólki og fólk er auðvitað hrætt. En ég held að þetta hafi gjörsamlega öfug áhrif á almenna borgara,“ segir Óskar.
Hann væri núna kominn með aðgang að mun betri upplýsingum af stöðu mála en áður. Samkvæmt þeim séu Rússar orðnir mjög örvæntingarfullir enda hafi úkraínska hernum tekist að rjúfa birgðaleiðir þeirra víðast hvar. Til að mynda með því að skjóta niður eldsneytisbíla. Þannig takist Rússum ekki að koma vopnum og vistum til innrásarhersins víða.
„Þeir færa herinn langt á undan þeim leiðum sem þeir fæða herinn. Straetegían hjá úkraínska hernum er að taka út þessa línur, sem fæða eldsneyti, mat og vopn,“ sagði Óskar Hallgrímsson í Kænugarði í morgun.