Tíska og hönnun

Í­sold, Anna og Ester hjá Vogu­e: „Spegil­myndin mín er ekki lengur ó­vinur minn“

Elísabet Hanna og Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifa
Ísold fann sjálfstraustið fyrir framan myndavélina.
Ísold fann sjálfstraustið fyrir framan myndavélina. Anna Margrét

Ísold Halldórudóttir birti pistil hjá Vogue.com þar sem hún fer yfir vegferð sína að sjálfsást og upplifuninni á sjálfri sér í tískuheiminum. Lífið á Vísi hafði samband við Ísold og fékk að heyra nánar frá samstarfinu við Vogue og öðrum verkefnum.

Lýsir vegferð

Pistillinn rekur sögu Ísoldar frá því að hún var nýkomin á unglingsárin og átti sjálf erfitt með að sjá fegurðina sem bjó í sjálfri sér, út frá samfélagslegum fegurðarstöðlum, að deginum í dag, þar sem Ísold starfar sem fyrirsæta. Pistlinum fylgja myndir sem íslenski ljósmyndarinn Anna Margrét tók og Ester Olga Mondragon sá um förðunina. 

Samtal um fegurðarviðmið um allan heim

Ísold hefur verið í ýmsum hátísku myndatökum í gegnum tíðina og hefur meðal annars birst í viðtali hjá tískutímaritinu Dazed. Þar kynntist hún Tish Weinstock, sem er ritstjóri hjá Vogue.

„Ég kynntist Tish fyrst árið 2019, þegar hún vann hjá Dazed og þar tók hún viðtal við mig sem birtist á Dazed Beauty. Síðan þá hef ég haldið sambandi við Tish og hún hefur stutt mig í gegnum árin. Tish hafði samband við mig um að Vogue væri að vinna í seríu sem fjallar um líkamstjáningu og spurði hvort ég hafði áhuga á að vera með.

Serían hjá Vogue talar til áframhaldandi samtals um fegurðarviðmið um allan heim, og sem aktivisti fyrir jákvæða líkamsímynd var ég spennt að segja frá minni reynslu og hvernig ég fann sjálfstraustið mitt fyrir framan myndavélina.“

Átti erfitt með að horfa í spegilinn

Ísold byrjar pistilinn á því að fara á stað sem hún var á þegar hún var að hefja unglingsárin. Á þeim árum átti hún erfitt með spegilmyndina sem horfi á hana til baka og reyndi að forðast hana. Hún jafnvel faldi spegilinn með teppi til þess að þurfa ekki að horfa á sjálfan sig. 

„Það hjálpaði ekki að þegar ég var að alast upp sá ég aldrei myndir af fólki sem leit út eins og ég. Ekki í tísku, ekki neinsstaðar. Það var eins og feitt fólk ætti ekki skilið að vera séð sem fallegt,“

segir hún meðal annars. 

Setur nýja staðla í fegurð

Í dag er Ísold komin langt frá þeim stað sem hún byrjaði á. Hún veitir mörgum innblástur í gegnum samfélagsmiðlana sína og hvetur aðra til þess að læra að elska sig eins og þeir eru. Í pistlinum lýsir hún því hvert vegferðin að sjálfsást hefur leitt hana í dag.

„Spegilmyndin mín er ekki lengur óvinur minn heldur stuðningurinn sem ég þurfti svo innilega þegar ég var yngri. Hugsanirnar sem unnu einu sinni gegn mér hvetja mig núna áfram til þess að berjast fyrir hlutunum sem ég trúi á og setja nýja staðla fyrir hvað það þýðir að vera fallegur - eða enn fremur hvað það þýðir að vera feitur.“

Instagram samfélagið sterkt

Ísold segir erfitt að segja til um hvort ferill sinn hafi þróast eða ekki en hefur þó náð að vekja mikla athygli.

„Stundum finnst mér eins og enginn tími sé liðinn og ég er enn í svefnherberginu mínu að reyna að breyta heiminum. Á sama tíma hefur samfélagið sem ég hef byggt upp á Instagram hjálpað mér gríðarlega að stækka vettvang minn og þannig hef ég náð athygli frá fólki sem skipta máli í bransanum.“

Takmarkaður fjölbreytileiki

Þrátt fyrir að oft sé talað um meiri fjölbreytileika á líkömum í tískuheiminum og vinsælli dægurmenningu segist Ísold ekki endilega sjá að fjölbreytileikinn hafi rutt sér til rúms.

„Það er oft verið að talað um fjölbreytni en sjaldan sé ég raunverulegar breytingar.Að sjálfsögðu er einhver munur frá því að ég byrjaði að vinna sem fyrirsæta en það er ekki nógu mikið til þess að ég get farið út í fataverslun og keypt mér buxur í minni stærð. Sérstaklega íslensk hönnun. Eins og hún er frábær þá er hún ekki fyrir feitt fólk.“

Spennt að fylgjast með þróun á nýju verkefni

Það er ýmislegt á döfinni hjá Ísold en hún var meðal annars að taka þátt í sínu fyrsta kvikmyndaverkefni sem leikkona.

„Síðasta stóra verkefnið mitt var að vinna sem leikkona í þýskri kvikmynd. Eitthvað sem ég hef aldrei gert áður en fannst mjög áhugavert og krefjandi. Ég hef alltaf haft mjög mikinn áhuga á kvikmyndum og er spennt að sjá hvernig þetta mun þróast með tímanum,“ segir Ísold að lokum.


Tengdar fréttir

Ísold vill að feitt verði fallegt

Ísold Halldórudóttir er í ítarlegu viðtal við breska miðilinn Dazed þar sem hún opnar sig um að hafa í gegnum tíðina upplifað sig út undan og ekki fundist hún falla inn í hópinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×