Aberdeen heiðraði Sir Alex Ferguson með styttu | Afhjúpaði hana sjálfur Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 25. febrúar 2022 18:01 Sir Alex Ferguson árið 1983. Sama ár og Aberdeen varð Evrópumeistari. C. Doherty/Getty Images Sir Alex Ferguson er hvað frægastur fyrir að gera Manchester United að einu mesta stórveldi knattspyrnusögunnar. Hann afrekaði ekki síðri hluti með Aberdeen í Skotlandi áður en hann hélt til Manchester-borgar árið 1986 og nú hefur skoska félagið ákveðið að heiðra Skotann magnaða.
Sir Alex Ferguson var staddur fyrir utan Pittodrie-leikvanginn í Aberdeen í dag þar sem afhjúpa átti styttu honum til heiðurs. Sir Alex þjálfaði Aberdeen frá 1978 til 1986 og gerði magnaða hluti með liðið. Lið hans stöðvaði ekki aðeins einokun Celtic og Rangers á toppi deildarinnar en það gerði sér einnig lítið fyrir og varð Evrópumeistari bikarhafa árið 1983 eftir sigur á Real Madríd. Alls varð Aberdeen þrisvar skoskur meistari, bikarmeistari fjórum sinnum og Evrópumeistari einu sinni undir stjórn Sir Alex. Sir Alex Ferguson unveiling his statue at Aberdeen pic.twitter.com/BKEy49G0C2— Football Daily (@footballdaily) February 25, 2022 Það var því löngu kominn tími til að félagið myndi heiðra hinn áttræða Ferguson sem hefur ekki verið á hliðarlínunni síðan árið 2013 er hann hætti sem þjálfari Manchester United. Hér að ofan má sjá myndband af því er Sir Alex afhjúpar styttuna.
Fótbolti Skoski boltinn Skotland Styttur og útilistaverk Mest lesið Finnur til með Arnari Handbolti Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Sjáðu þegar allt sauð upp úr í Kópavogi og glæsimark Sveins Íslenski boltinn Tvö lið hætt við HM og Spánverjar hlaupa í appelsínugulri viðvörun Sport Ólafur Ingi: „Mér skilst að hann hafi bara kýlt hann“ Íslenski boltinn Íhugaði að hætta: „Ekki stóra markmiðið heldur hvað maður lærir á leiðinni“ Sport Elísabet tjáir sig: Grátlega nálægt draumnum í þrígang Fótbolti Lyfti litlu tæki í stað gulra og rauðra spjalda Fótbolti Keflavík - KR | Geta gulltryggt annað sætið Íslenski boltinn Landsliðskonan ólétt og leggur skóna á hilluna Íslenski boltinn Fleiri fréttir Fjölnir fær Ívar Ingimars til starfa Valur - KA | Nær KA að sleppa frá falli? Lyfti litlu tæki í stað gulra og rauðra spjalda Keflavík - KR | Geta gulltryggt annað sætið Everton - Chelsea | Heimamenn ekki tapað í síðustu tíu leikjum Elísabet tjáir sig: Grátlega nálægt draumnum í þrígang Gætu orðið meistarar eftir vinnu á mánudaginn Ólafur Ingi: „Mér skilst að hann hafi bara kýlt hann“ Sjáðu þegar allt sauð upp úr í Kópavogi og glæsimark Sveins Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - ÍBV 2-1| Grindavík/Njarðvík vann síðasta heimaleikinn á tímabilinu Uppgjörið: ÍBV - FH 3-1 | Tíu Eyjamenn náðu fyrsta sigri í þrjá mánuði Uppgjörið: Breiðablik - Víkingur 1-2 | Fjögur rauð í miklum hitaleik Algjört bíó í Eyjum: Ótrúlegt klúður og tvö gul og rautt á sömu sekúndu Landsliðskonan ólétt og leggur skóna á hilluna Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Syndaaflausn Infantino: „Páfinn yrði himinlifandi“ Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Orri hélt liðsfund án aðkomu Arnars Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Bjarni Jó hættur Kjartan samþykkti erfiða áskorun: „Á dauða mínum átti ég von“ Skömmin sé nægileg refsing: „Það sem gerðist þetta kvöld er óásættanlegt“ Ingibjörg orðlaus: „Hversu heppinn er þessi litli strákur?“ Infantino baðst afsökunar en neitaði að svara fjölmiðlum Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Fallegt Evrópukvöld fyrir Íslendingana Bournemouth nýtur lífsins á nýjum slóðum en Willum spilaði lítið Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Mikael meiddur af velli í Belgíu Orri nálægt sigurmarki á 90 sekúndum Sjá meira