Lífið

Chris Burkard minnist flugmannsins Haraldar Diego

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Chris Burkhard og Haraldur Diego. Myndin var tekin í einum af þeirra ævintýrum.
Chris Burkhard og Haraldur Diego. Myndin var tekin í einum af þeirra ævintýrum. Chris Burkard

Íslandsvinurinn og ljósmyndarinn Chris Brukhard minnist vinar síns, flugmannsins Haraldar Diego, í nýrri færslu á Instagram. Haraldur var einn fjögurra sem lést í flugslysi á Þingvöllum þann 3. febrúar. 

Chris var náinn vinur Haraldar og hafði farið í margar flugferðir með honum hér á landi. Chris var sá fyrsti sem greindi frá því að Haraldur væri einn þeirra fjögurra sem leitað var að eftir að flugvélin skilaði sér ekki til baka. Fjölskylda Haraldar hafi beðið hann að þakka fólki stuðninginn sem hún hafi fundið fyrir vegna leitarinnar.

Lík Haraldar og farþeganna þriggja sem voru um borð í flug­vélinni TF-ABB fundust um helgina um það bil 300 metrum frá flugvélarflakinu og á minnst 37 metra dýpi. Stefnt er að því að sækja lík þeirra á fimmtudag þegar veður leyfir. Talið er að vélin hafi brotlent á Þingvallavatni og allir um borð hafi komist út að sjálfsdáðum áður en hún sökk til botns.

Haraldur Diego var reynslumikill flugmaður.Chris Burkard

Í færslu sinni segir Chris meðal annars að hann eigi Haraldi mikið að þakka, bæði í sinni velgengni og í föðurhlutverkinu. 

„Engin albúm verða nógu stór til að deila sögunum og reynslunni sem ég átti með þessum manni og áhrifunum sem hann hafði á mig. Hann var meira en góður vinur, hann kom fram við mig eins og bróður og oft eins og son.“

Ljósmyndarinn segist aldrei hafa tekið tíma þeirra saman í háloftunum sem sjálfsögðum hlut. Hann deildi nokkrum myndum og myndböndum frá ævintýrum þeirra og hvatti aðra til að gera slíkt hið sama og merkja með millumerkinu #volcanopilot. Chris segir að í sorginni haldi hann fast í það hversu heppinn hann hafi verið að eiga svona vin. 

Hann vottaði aðstandendum, vinum og Íslendingum samúð vegna þessa missis. Færsluna má lesa í heild sinni hér fyrir neðan.


Tengdar fréttir

Búið að finna öll fjögur líkin

Búið er að finna lík flugmannsins og farþeganna þriggja sem voru um borð í flug­vélinni TF-ABB. Þetta staðfestir Oddur Árnason, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurlandi, í samtali við fréttastofu en umfangsmikil leit hefur farið fram í og við Þingvallavatn í dag.

Enginn inni í flugvélaflakinu og leit hefst aftur á morgun

Enginn þeirra fjögurra farþega sem voru í flugvélinni sem fannst í Þingvallavatni eru nú inni í flakinu. Þetta leiddi kafbátaleit í ljós seinni partinn í dag. Svæðisstjórn björgunarsveita er byrjuð að skipuleggja áframhaldandi leit í og við vatnið á morgun.

Flugvélin sem leitað var að fannst í Þingvallavatni

Flugvélin sem saknað hefur verið frá því um hádegisbil á fimmtudag er fundin. Vélin fannst með fjarstýrðum kafbát fyrirtækisins Teledyne Gavia í Ölfusvatnsvík, í sunnanverðu Þingvallavatni, á ellefta tímanum í kvöld. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×