Neytendur

N1 Raf­magn biðst vel­virðingar og endur­greiðir við­skipta­vinum

Eiður Þór Árnason skrifar
Hinrik Örn Bjarnason, framkvæmdastjóri N1.
Hinrik Örn Bjarnason, framkvæmdastjóri N1. N1

N1 Rafmagn hefur ákveðið að selja alla raforku á sama verðtaxta til heimila frá og með 1. janúar 2022, hvort sem viðskiptavinir hafi skráð sig sjálfir í viðskipti eða komið í gegnum þrautavaraleið stjórnvalda. 

Jafnframt verður viðskiptavinum fyrirtækisins endurgreiddur mismunur á uppgefnum taxta og þrautavarataxta frá 1. nóvember síðastliðnum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu.

Stjórnendur N1 Rafmagns hafa verið gagnrýndir fyrir að rukka fólk sem kemur í viðskipti í gegnum áðurnefnda þrautavaraleið mun hærri taxta en fyrirtækið hefur auglýst og boðið öðrum viðskiptavinum.

„Aldrei var ætlunin að blekkja neytendur á nokkurn hátt og þykir okkur leitt ef neytendur túlka það svo. Vegna skyndilegrar innkomu þrautavaraviðskipta til fyrirtækisins, þurfti N1 Rafmagn að kaupa orku handa þessum hópi á skammtímamarkaði þar sem verð eru afar breytileg og hafa hækkað ört á síðustu misserum,“ segir Hinrik Örn Bjarnason, framkvæmdastjóri N1, í yfirlýsingu. Hann sagði fyrr í dag að það væri óraunhæft að bjóða öllum viðskiptavinum sama raforkuverð.

„Því skal haldið til haga að N1 Rafmagn hefur á engum tímapunkti fengið mismun á uppgefnum taxta samkvæmt verðskrá og þrautavarataxta í sinn vasa, heldur Landsvirkjun sem selur orku á skammtímamarkaði á mun dýrara verði en til langs tíma,“ segir Hinrik.

Um þúsund fara sjálfkrafa í viðskipti við N1 rafmagn í hverjum mánuði

Í maí 2020 gaf Orkustofnun síðan út leiðbeiningar um val á sölufyrirtæki til þrautavara og er það fyrirtæki tilnefnt sem hefur lægstan heildarkostnað á sex mánaða tímabili. Þegar fólk flytur inn í nýtt húsnæði fær það tilkynningu um að það hafi sjö daga til að velja raforkusala en ef það velur ekki fer það sjálfkrafa til fyrirtækisins sem Orkustofnun hefur valið í sex mánuði í senn.

Frá upphafi hefur það fyrirtæki verið N1 Rafmagn sem hét áður Íslensk orkumiðlun. Á sama tíma og N1 Rafmagn hefur auglýst lægsta rafmagnsverð landsins á 6,44 krónur á kílóvattsstund hefur fólk sem er fært sjálfkrafa til fyrirtækisins greitt 11,16 krónur. Um það bil þúsund aðilar lenda hjá N1 í hverjum mánuði vegna þrautavaraleiðarinnar.

Sagði það óraunhæft að bjóða sama verð

N1 hvetur Orkustofnun til að hraða endurskoðun á þeim kvöðum sem orkusali til þrautavara þarf að undirgangast þar sem erfitt sé fyrir þann sem verður fyrir valinu að gera ráð fyrir þessum hóp í langtímaviðskiptum sínum við birgja.

„Taka þarf inn í myndina ófyrirsjáanlegar verðsveiflur á orkumarkaði og getu orkusalans til að bjóða þessum hópi orku á sem bestu kjörum.“

Hinrik sagði í samtali við fréttastofu fyrr í dag að það væri einfaldlega ekki raunhæft að bjóða öllum sama verð þar sem fyrirtækið þurfi að kaupa dýrari orku á skammtímamarkaði fyrir þrautavaraviðskiptavini.

Hann segir N1 Rafmagn fagna virkri samkeppni og hafa það að leiðarljósi að bjóða lægsta verð hverju sinni. 

„Við hvetjum alla neytendur til að skrá sig sjálfa hjá þeim orkusala sem þeir kjósa, án aðkomu stjórnvalda.“


Tengdar fréttir

Hafnar því alfarið að N1 sé að blekkja neytendur

Framkvæmdastjóri N1 hafnar því alfarið að viðskiptavinir séu beittir blekkingum í tengslum við þrautavaraleið á sölu raforku. Hann fagnar því að umræða eigi sér nú stað á raforkumarkaði og að fyrirkomulag þrautavaraleiðarinnar sé nú til skoðunar.

„Ef þú gerir ekki neitt þá ferðu á hæsta raf­magns­verð Ís­lands­sögunnar“

Framkvæmdastjóri Orku náttúrunnar gagnrýnir harðlega að ekki sé virkt eftirlit með sölu á raforku í landinu og segir að svindlað sé á neytendum með núverandi fyrirkomulagi. Hún segir óvanalegt að ríkið geti ákveðið til lengri tíma við hvaða fyrirtæki fólk eigi í viðskiptum við og kallar eftir aukinni umræðu.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×