Segir Sjúkratryggingar stilla talmeinafræðingum upp við vegg Fanndís Birna Logadóttir skrifar 18. janúar 2022 18:11 María Heimisdóttir, forstjóri Sjúkratrygginga Íslands, og Kristín Theodóra Þórarinsdóttir, formaður Félags talmeinafræðinga á Íslandi, líta ekki eins á stöðu mála um þessar mundir. Vísir/Baldur/Sigurjón Sjúkratryggingar Íslands munu fella tveggja ára starfsreynsluákvæði úr samningi við talmeinafræðinga og verður núgildandi samningur framlengdur um sex mánuði, án ákvæðisins, og sá tími nýttur til að fara mál á borð við forgangsröðun. Formaður Félags talmeinafræðinga segist upplifa það að þeim sé stillt upp við vegg en forstjóri Sjúkratrygginga segir mikilvægt að ræða og tryggja gæði þjónustunnar.
Tveggja ára starfsreynsluákvæði sem finna má í rammasamningi Sjúkratrygginga Íslands við sjálfstætt starfandi talmeinafræðinga verður afnumið í næsta samningi en þetta staðfestir María Heimisdóttir, forstjóri Sjúkratrygginga Íslands í samtali við fréttastofu. Ákvæðið var upprunalega sett inn í rammasamninginn árið 2017 en gildistími samningsins rann út í lok október 2019. Frá þeim tíma hefur samningurinn verið endurnýjaður um einn mánuð í senn en viðræður um nýjan samning hafa ekki borið árangur. Viðræðurnar hafa að mörgu leyti strandað á starfsreynsluákvæðinu en heilbrigðisráðherra fól Sjúkratryggingum fyrir rúmum mánuði að fella brott ákvæðið. Að sögn Maríu fengu þau samningsmarkmið frá ráðherra í lok desember. Gamli samningurinn verður fyrst um sinn framlengdur um sex mánuði, þó án tveggja ára ákvæðisins, og verður sá tími nýttur til að undirbúa nýtt heildstætt samkomulag. Að sögn Maríu er nú unnið að breytingum og er vonast til að gengið verði frá framlengingunni í þessari viku. „Við fengum samningsmarkmið frá ráðherra í lok desember þar sem var gert ráð fyrir einfaldri framlengingu með niðurfellingu á tveggja ára reglunni en svo voru þau samningsmarkmið endurskoðuð,“ segir María. „Það komu ný markmið fyrir viku síðan þar sem var ákveðið að nota næstu sex mánuði til að vinna að ákveðnum skilmerkjum varðandi gæðavísa og forgangsröðun sjúklinga,“ segir hún enn fremur en hún segir mikilvægt að tryggja áframhaldandi traustan farveg fyrir þjónustuna. Upplifir að talmeinafræðingum sé stillt upp við vegg Kristín Theodóra Þórarinsdóttir, formaður Félags talmeinafræðinga á Íslandi, segir talmeinafræðinga upplifa stöðuna öðruvísi en forstjóri sjúkratrygginga lýsir. Hún segir Sjúkratryggingar setja þeim þröngar skorður gegn því að fella út ákvæðið. „Það kemur okkur svolítið spánskt fyrir sjónir því það hefur gengið mjög treglega að setjast að samningaborðinu með Sjúkratryggingum Íslands og erfitt að hefja umræður af alvöru. Við vorum orðin svolítið óþolinmóð í byrjun árs því að klukkan tifar og þessi tilmæli voru mjög skýr frá heilbrigðisráðherra að fella út þetta ákvæði. Við vildum hefjast handa sem fyrst en þau setja okkur stífan ramma og kröfur að klára ákveðin samningsviðmið“ segir Kristín. Hún lýsir því að talmeinafræðingum hafi verið stillt upp við vegg. „Það er algjörlega okkar upplifun að það sé ekkert að klára þetta fyrr en það sé búið að tækla þessi stóru mál, þau krefjast lengri vinnu og þarf auðvitað að skoða, en okkur er svo sannarlega stillt upp við vegg í þessu,“ segir Kristín. Sjúkratryggingar þurfi nú að koma til móts við talmeinafræðinga og eiga samtal við þau um framtíðina. „Við viljum að Sjúkratryggingar sýni virkilegan vilja til að setjast að borðinu og klára þennan samning. Það er margt sem er hægt að bæta en þetta er orðið mjög þreytt og við viljum bara fá viðbrögð frá ráðuneytinu og það strax,“ segir Kristín. Mikilvægt verkefni sem þarf að ræða María segir aftur á móti að Sjúkratryggingar séu öll af vilja gerð en bendir á að áður en eiginlegar samningaviðræður fari fram þurfi að taka ákvörðun um framlenginguna. „Viðræðurnar fara fyrst og fremst af stað eftir að við erum búin að skrifa undir, vegna þess að það eru í rauninni fyrirmæli ráðherra að aðilar noti næstu sex mánuði til þess að vinna með þessi gæðamál og forgangsröðunina,“ segir María. Hún segir að viðræðurnar eigi svo sannarlega eftir að eiga sér stað, enda séu þær hluti af samningnum. „Þetta er mjög mikilvæg þjónusta og talmeinafræðingar hafa lagt gríðarlega áherslu á að þetta ákvæði verði fellt niður. Nú hefur ráðuneytið ákveðið að svo verði og þá bara viljum við drífa í að ganga frá því og fara í það sem er ekki síður mikilvægt verkefni, að ræða gæðin og forgangsröðunina,“ segir María.
Börn og uppeldi Heilbrigðismál Tengdar fréttir Talmeinafræðingar sitja auðum höndum á meðan biðlistinn lengist Þann 14. desember síðastliðinn færðust stór bros yfir mörg andlit og hamingjuóskum rigndi yfir okkur, nýlega útskrifaða talmeinafræðingana, þegar frétt birtist með fyrirsögninni „Skilyrði um tveggja ára starfsreynslu talmeinafræðinga afnumið“. En hvað svo? 12. janúar 2022 14:31 Starfshópi um tillögur að þjónustu talmeinafræðinga komið á laggirnar Nýr starfshópur verður stofnaður til að vinna heildstæðar tillögur um þjónustu talmeinafræðinga við börn en heilbrigðisráðherra hefur samþykkt minnisblað þess efnis. 11. nóvember 2021 16:44 Getur endað með einangrun ungs fólks Skortur á úrræðum og stuðningi við ungt fólk sem stamar getur haft afar neikvæð áhrif og stuðlað að því að ungmenni sem stama dragi sig í hlé eða endi í algjörri einangrun. Töluvert hefur borið á fyrirspurnum til Málbjargar vegna þessa en ein helsta ástæðan er sú að biðlistar eftir þjónustu talmeinafræðinga eru mun lengri en boðlegt getur talist. 22. október 2021 08:04 Mest lesið Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Erlent „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fleiri fréttir Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Sjá meira
Talmeinafræðingar sitja auðum höndum á meðan biðlistinn lengist Þann 14. desember síðastliðinn færðust stór bros yfir mörg andlit og hamingjuóskum rigndi yfir okkur, nýlega útskrifaða talmeinafræðingana, þegar frétt birtist með fyrirsögninni „Skilyrði um tveggja ára starfsreynslu talmeinafræðinga afnumið“. En hvað svo? 12. janúar 2022 14:31
Starfshópi um tillögur að þjónustu talmeinafræðinga komið á laggirnar Nýr starfshópur verður stofnaður til að vinna heildstæðar tillögur um þjónustu talmeinafræðinga við börn en heilbrigðisráðherra hefur samþykkt minnisblað þess efnis. 11. nóvember 2021 16:44
Getur endað með einangrun ungs fólks Skortur á úrræðum og stuðningi við ungt fólk sem stamar getur haft afar neikvæð áhrif og stuðlað að því að ungmenni sem stama dragi sig í hlé eða endi í algjörri einangrun. Töluvert hefur borið á fyrirspurnum til Málbjargar vegna þessa en ein helsta ástæðan er sú að biðlistar eftir þjónustu talmeinafræðinga eru mun lengri en boðlegt getur talist. 22. október 2021 08:04