Innlent

Börn niður í ellefu ára aldur beiti ofbeldi til þess eins að fá „læk“ á samfélagsmiðlum

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Birgir Örn Guðjónsson hefur áhyggjur af fjölda ofbeldisbrota hjá ungum krökkum. 
Birgir Örn Guðjónsson hefur áhyggjur af fjölda ofbeldisbrota hjá ungum krökkum.  Vísir/Arnar Halldórsson

Ofbeldi meðal ungra krakka hefur aukist og stöðugt fleiri börn bera á sér vopn, að sögn lögreglu. Dæmi séu um að krakkar allt niður í ellefu ára aldur taki þátt í slagsmálum – oft í þeim eina tilgangi að geta birt af þeim myndbönd á samfélagsmiðlum.

Töluvert hefur borið á fréttum af árásum ungmenna að undanförnu. Má þar til að mynda nefna hóp barna í Garðabæ sem safnaðist saman við heimili samnemenda síns í síðasta mánuði og hótuðu honum ofbeldi. Þá var ráðist á tvo sextán ára drengi á Álftanesi á föstudag og gróf árás var við Kringluna á laugardag þegar hópur ungmenna veitti pilt undir átján ára aldri höfuðhögg.

Birgir Örn Guðjónsson, varðstjóri og samfélagslögregla, segist að árásirnar séu oftast gerðar í þeim tilgangi að fá læk á samfélagsmiðlum.

„Það er ekkert hægt að neita því að það virðist vera ákveðinn stígandi, fjölgun í þessum brotum, sem veldur okkur áhyggjum,“ segir Birgir.

„Þetta er farin að verða ákveðin sýning. Það eru aðilar og jafnvel hópar sem vilja taka þetta upp og sýna á samfélagsmiðlum, og það er þessi heimur sem krakkar eru rosalega mikið með í sínum lófa inni í herbergi og foreldrar vita ekkert hvaða heimur þetta er,“ segir hann. Í þessum heimi skapi krakkarnir sér nafn sem hættulegir einstaklingar og búi sér til heim sem sé fullur af ótta og hótunum.

Með barefli og hnífa á sér

Birgir segir að borið hafi á því að unglingar beri á sér vopn á borð við hnífa. 

„Eitthvað sem er gert í ákveðnu hugsanaleysi. Ég hef rætt við mjög mikið af unglingum og yfirleitt vita þeir ekkert af hverju þeir eru með þetta á sér. Þeir segja bara að þeir séu að verja sig – en þegar ég spyr hvað þeir ætli að gera ef þeir reiðist, hvort þeir ætli í alvöru að taka upp hnífinn og stinga aðra og lifa með því restina af lífinu, þá nær hugsunin bara ekki þangað. Þetta er bara einhver viðtekin venja að ákveðinn hópur er tilbúinn til að bera á sér hníf eða barefli og mæta þannig í slagsmál.“

Sjálfur hefur Birgir starfað með barnaverndarnefndum í tengslum við mál af þessum toga auk þess sem hann sinnir forvarnarstarfi í skólum. Hann segir mikilvægt að foreldrar tali við börnin sín.

„Samtalið er það sem ég held að skipti öllu máli. Þessi heimur þarna er kominn til að vera og það skiptir máli að eiga eðlilegt samtal,“ segir hann. „Skilaboðin til unglinganna eru að mæta ekki á staðinn þar sem búið er að ákveða slagsmál. Að taka ekki þátt í þessu. Ekki að taka þetta upp og ekki dreifa þessu. Vera ekki partur af þessum heimi og hjálpa okkur frekar, bara sem samfélag.“


Tengdar fréttir

Hópuðust saman við heimili sam­nemanda og ætluðu að taka lögin í sínar hendur

Lög­regla á höfuð­borgar­svæðinu var kölluð út að heimili í Garða­bæ í gær­kvöldi en stór hópur krakka hafði safnast saman fyrir utan það og haft í hótunum við heimilis­fólkið. Að­stoðar­yfir­lög­reglu­þjónn gerir ráð fyrir að heimilis­fólkið leggi inn kærur á morgun og að málið verði í fram­haldi unnið í sam­starfi við barna­verndar­yfir­völd, enda séu krakkarnir ó­sak­hæfir.

Árásin gróf og litin alvarlegum augum

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lítur grófa líkamsárás ungmenna á annað ungmenni við Kringluna í gær mjög alvarlegum augum. Barefli virðist hafa verið beitt við árásina en þolandi fékk höfuðhögg og var fluttur talsvert slasaður á sjúkrahús, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×