Innlent

Um­­­deildur Ís­lands­þáttur Top Gear endaði á æsi­­legum kapp­akstri að barmi Rauðu­­skálar

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Farið er um víðan völl í sérstökum Íslandsþætti Top Gear sem sýndur var um helgina.
Farið er um víðan völl í sérstökum Íslandsþætti Top Gear sem sýndur var um helgina. BBC/Skjáskot

Íslandsþáttur breska bílaþáttanna ofurvinsælu Top Gear, sem tekinn var upp hér á landi í sumar var sýndur um liðna helgi í Bretlandi. Í þættinum má meðal annars sjá umdeildan utanvegaakstur á Hjörleifshöfða, auk þess sem að þátturinn fjallar að stórum hluta um æsilegan kappakstur um óbyggðir Íslands sem endar á barmi Rauðuskálar.

Bílaþátturinn Top Gear er enn einn vinsælasti þátturinn sem sýndur er á bresku sjónvarpsstöðinni BBC. Þar takast þáttastjórnendur á við ýmis bílatengd verkefni, og yfirleitt er keppt í einhvers konar kappakstri. Íslandsþátturinn nú er þar engin undantekning.

Tökur þáttanna hér á landi í sumar reyndust umdeildar enda kom á daginn að boðað hafði verið til sandspyrnukeppni í tengslum við þáttinn við Hjörleifshöfða. Í þættinum má sjá að útbúin var sandspyrnubraut í sandinum og alls konar bílar og tæki höfðu verið boðuð til að keppa.

Umhverfisstofnun kallaði til lögreglu

Kvartað var til Umhverfisstofnunar vegna málsins, og þá vegna utanvegaaksturs í sandinum við Hjörleifshöfða. True North, sem kom að verkefninu á vegum Top Gear hélt því reyndar fram að ekki hafi verið um eiginlegan utanvegaakstur að ræða, þar sem allt hafi verið gert í góðri samvinnu við landeigendur.

Sandspyrnubrautin í sandinum.Skjáskot/BBC

Sigrún Ágústsdóttir, forstjóri Umhverfisstofnunar, sagði þó í tengslum við málið að ekki væri nóg að fá leyfi landeigenda til að aka utan vega, til þess þyrfti alltaf leyfi Umhverfisstofnunar eða annarra yfirvalda. Skýrt væri í lögum að utanvegaakstur væri bannaður alls staðar.

Samkvæmt upplýsingum frá Umhverfisstofnun var ekki sótt um leyfi til utanvegaaksturs til stofnunarinnar samkvæmt lögum um náttúruvernd. Starfsmenn Umhverfisstofnunar komu  á vettvang á meðan tökur stóðu og kölluðu til lögregluna á Suðurlandi.

Eftir tökur reyndi True North að að endurheimta upprunalega ásýnd svæðisins, meðal annars með vegheflum og fjórhjólum með keðjumottu.

Óneitanlega góð landkynning

Þátturinn er nær allur helgaður Íslandi en þar má sjá tvo af stjórnendum þáttarins mæta til Íslands, Paddy McGuinnes og Chris Harris. Sá þriðji, Freddie Flintoff, átti einnig að koma en í þættinum kemur fram að hann hafi verið settur í sóttkví daginn fyrir brottför til Íslands og hafi því þurft að sætta sig við að sitja heima.

Fjöldinn allur af bílum var mættur viið Hjörleifshöfða.Skjáskot/BBC

Markmið þáttarins er skýrt en þáttastjórnendur fengu það verkefni að prófa klassíska breska bíla í erfiðum aðstæðum. Í byrjun þáttarins taka þáttastjórnendur fram að í júlí hafi ekki margir staðir komið til greina til að standa að svo viðamiklu kvikmyndatökuverkefni sökum kórónuveirufaraldursins. Staðan á Íslandi var hins vegar góð á þessum tíma og því var ákveðið að koma hingað til lands.

Óumdeilt er að þátturinn mun reynast ágæt landkynning enda mikið gert úr víðum og glæsilegu skotum frá Suðurlandi þar sem þátturinn er að öllu leyti tekinn upp. Auk þess tala þáttastjórnendurnir tvær afar fallega um Ísland allan þáttinn.

Ældi nærri því þegar hinn gæddi sér á hrútspungum

Þátturinn hefst á því að Harris og McGuinnes eru á gangi á ónefndum stað á Suðurlandi þar sem þrír gámar bíðar þeirra. Þar leynast bílarnir sem þeir völdu sér en McGuinnes ferðaðist um landið á breyttum Rolls Royce Silver Shadow, Harris valdi sér Vauxhal Chevette í rallýbúningi. Þriðji gámurinn geymdi svo Range Roverinn hans Flintoffs.

Þrír gámar biðu Nick Harris og Paddy McGuinnes.Skjáskot/BBC

Fyrsta verkefnið var að keyra í átt að Hjörleifshöfða en heyra má þáttastjórnendur fara afar fögrum orðum um Ísland á leiðinni þangað.

Þegar þangað er komið má glögglega sjá þau ummerki sem urðu vegna sandspyrnukeppninnar en búið var að útbúa stærðarinnar sandspyrnubraut í sandinum. Þar keppa Harris og McGuinnes í sandspyrnu en The Stig, sérlegur kappaksturkappi þáttanna, tók að sér að keyra bílinn sem Flintoff ætlaði sér að vera á.

Eftir sandspyrnukeppnina var haldið af stað í séríslenskar aflraunir áður en haldið var á næturstað undir rótum Heklu. Þar fengu þeir félagar að sjálfsögðu að smakka hefðbundin íslenskan mat, svið, hrútspunga og því um líkt. Sjá má að Harris er ekki smeykur við að smakka matinn á meðan McGuinnes er með æluna í kokinu.

Paddy McGuinnes var ekki hrifinn af íslenska matnum.BBC/Top Gear

„Ég ætla að prófa smá pung á brauði,“ segir Harris þegar hann gæðir sér á hrútspunginum.

„Nei, þú ætlar ekki að gera það,“ svarar McGuinnes hneykslaður.

„Af hverju ekki? svarar Harris sem gæðir sér svo á brauðinu

„Frekar mikið saltbragð,“ segir Harris þá og sjá má McGuinnes vera stutt frá því að æla.

Keyra heldur greitt um vegslóða undir Heklurótum

Að loknum nætursvefni var aðalverkefni þáttarins framundan. Kappakstur frá skálanum þar sem gist var undir Heklurótum upp að barmi Rauðuskálar. The Stig er keppinautur þeirra tveggja en hann fékk að vísu örlítið hentugri bíl en þeir félagar. Breyttan Ford F-150 jeppa. Harris og McGuinnes fá þó töluvert forskot á The Stig.

The Stig fékk öllu kraftmeiri bíl en Harris og McGuinnes, en hann þurfti þó að gefa þeim hálftíma forskot.Skjáskot/BBC

Sjá má að kapparnir þrír keyra heldur óvarlega í kappakstrinum, þar sem hraðinn virðist vera fyrir öllu hjá þeim. Halda þeir þig só nær að öllu leyti á slóðanum sem þeir óku eftir.

Ljós er að þeir félagar eru yfir sig hrifnir af Íslandi enda spara þeir ekki stóru orðin í lýsingum á landslaginu.

„Hvert sem þú lítur er hægt að sjá ummerki um að eitthvað ægilegt náttúruafl hafi annað hvort rústað öllu, flatt það niður eða sprengt það upp. Þetta er svo villt,“ segir Harris.

„Ég var ekki viss að óbyggðirnar væru eitthvað fyrir mig en ég verð að segja að ég er að elska þetta,“ svarar McGuinnes.

Æsilegur hápunktur að barmi Rauðuskálar

Hápunktur þáttarins er svo þegar The Stig nær þeim félögum rétt áður en komið er upp Rauðuskál. Hefst þá mikill æsingur þar sem allt er gefið í sölurnar til þess að komast á endastöð á undan The Stig.

Þeir félagar keyrðu heldur óvarlega.Skjáskot/BBC

Fylgja þeir félagar slóða sem liggur upp Rauðuskál og endar þátturinn þar.

„Við vorum í kappakstri upp eldfjall,“ lýsir Harris yfir sigri hrósandi.

Því næst virða Harris og McGuinnes fyrir sér útsýnið af toppi Rauðuskálar. Augljóst er að þeim þykir mikið til koma.

„Þetta er ótrúlegt,“ segir McGuinnes.

Ekki amalegt útsýni en ólíklegt verður að teljast að slóðinn sem liggur að Rauðuskál nái jafn langt og bílarnir eru staðsettir.BBC/Skjáskot

Oft hefur verið kvartað yfir utanvegaakstri við Rauðuskál en samkvæmt upplýsingum frá Umhverfisstofnun liggur slóði að gígnum. Erfitt er þó að segja til um hvar hann endar nákvæmlega.


Tengdar fréttir

Segir ekki um utan­vega­akstur við Hjör­leifs­höfða að ræða

Tökustaðastjóri hjá True North, sem stendur að kvikmyndatöku fyrir breska þáttinn Top Gear, segir ekki að um eiginlegan utanvegaakstur sé að ræða. Þá hafi komið upp einhver misskilningur hjá Umhverfisstofnun um að tökurnar séu ólöglegar.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×