West Ham í toppmálum á toppi H-riðils

West Ham er á toppi H-riðils.
West Ham er á toppi H-riðils. Craig Mercer/MB Media/Getty Images

Það tók West Ham tæplega hálftíma að brjóta ísinn, en þar var á ferðinni Declan Rice eftir stoðsendingu frá framherjanum Michail Antonio og staðan var því 1-0 í hálfleik.

West Ham var sterkari aðilinn í leiknum og voru líklegri til að bæta við öðru marki heldur en að gestirnir myndu jafna leikinn. 

Said Benrahma gerði nákvæmlega það þegar hann tryggði 2-0 sigur Lundúnaliðsins á fjórðu mínútu uppbótartíma.

West Ham er nú á toppi H-riðils, með sex stig eftir tvo leiki. Rapid Vín er í fjórða og neðsta sæti án stiga.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira