Íslenski boltinn

Markasyrpa 16. um­ferðar: Öll mörkin úr Garða­bænum, frá Akra­nesi, sigur­mark Leiknis R. og öll hin

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Viktor Karl skoraði glæsilegt mark í umferðinni sem lauk í gærkvöld.
Viktor Karl skoraði glæsilegt mark í umferðinni sem lauk í gærkvöld. Vísir/Hulda Margrét

16. umferð Pepsi Max deildar karla í knattspyrnu lauk með einum leik í gær. Breiðablik vann þá 3-1 sigur á Stjörnunni er liðin mættust í Garðabæ. Hér að neðan má sjá öll mörkin úr leiknum sem og öll mörk umferðarinnar.

Breiðablik vann verðskuldaðan sigur á Stjörnunni þökk sé tvennu fyrirliðans Höskuldar Gunnlaugssonar og glæsilegu marki Viktors Karls Einarssonar. Þá skutu Thomas Mikkelsen og Jason Daði Svanþórsson í stöng og slá í sömu sókninni ásamt því að Blikar fóru illa með nokkur fín færi í leiknum.

Oliver Haurits minnkaði muninn fyrir Stjörnuna seint í síðari hálfleik en öll fjögur mörkin má sjá í spilaranum hér að neðan. Þar má einnig sjá öll mörk umferðarinnar en þau voru 18 talsins. 

Fimm þeirra komu upp á Skaga, fjögur í Fossvogi, tvö í bæði Vesturbæ sem og Árbæ en aðeins eitt í Breiðholti.

Klippa: Markasúpa 16. umferðar

Pepsi Max deild karla er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Pepsi Max deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×