Körfubolti

NBA dagsins: Dirk mætti og Dallas fór frá Los Angeles með tvo sigra í ein­víginu á móti Clippers

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Luka Doncic hefur ástæðu til að brosa eftir frábæra byrjun Dallas Mavericks í úrslitakeppninni.
Luka Doncic hefur ástæðu til að brosa eftir frábæra byrjun Dallas Mavericks í úrslitakeppninni. Getty/Harry How

Besti leikmaður í sögu Dallas Mavericks var mættur fyrir aftan bekkinn hjá sínu liði í nótt þegar Luka Doncic leiddi Dallas til sigurs á Los Angeles Clippers í úrslitakeppni NBA deildarinnar í körfubolta. Staðan er orðin 2-0 fyrir Mavericks.

„Það bjuggust örugglega allir við því að við myndum vinna,“ sagði LA Clippers maðurinn Paul George eftir að Clippers tapaði öðrum heimaleiknum í röð en meistaraefnin eru nú komin upp að vegg með næstu tvo leiki á heimavelli Dallas.

Dirk Nowitzki var aðalmaðurinn á bak við eina NBA-titil Dallas Mavericks fyrir tíu árum. Hann átti magnaðan 21 árs feril með félaginu. Þótt að enginn sé farinn að tala um titil hjá Dallas liðinu ennþá þá hefur byrjun liðsins í úrslitakeppninni vakið mikla athygli.

„Ég er viss um að hann færði okkur lukku með því að vera hér í kvöld,“ sagði Rick Carlisle, þjálfari Dallas Mavericks. Hann hafði í það minnsta mjög góð áhrif á Luka Doncic sem skoraði 39 stig, tók 7 fráköst og gaf 7 stoðsendingar.

„Hugarfarið okkar var að fara út á völl, spila af ákveðni og hafa gaman,“ sagði Luka Doncic sem var með þrennu í fyrsta leiknum.

„Við megum ekki slaka neitt á. Við vitum hvað þeir geta gert,“ sagði Tim Hardaway Jr. sem skoraði 28 stig fyrir Dallas.

„Þeir eru að spila frjálsir og með mikið sjálfstraust. Ég held að við séum að gefa þeim aðeins of mikið sjálfstraust. Nú er það undir okkur komi að taka það til baka,“ sagði Paul George og þjálfari hans Tyronn Lue er ekkert of stressaður yfir stöðunni.

„Ég hef ekki áhyggjur. Þeir unnu tvo leiki á okkar heimavelli og nú þurfum við bara að gera það sama,“ sagði Tyronn Lue.

Hér fyrir neðan má svipmyndir frá öllum leikjunum í nótt þar sem Los Angeles Lakers jafnaði metin á móti Phoenix Suns og Brooklyn Nets komst í 2-0 á móti Boston Celtics. Þar eru einnig flottustu tilþrif næturinnar.

Klippa: NBA dagsins (frá 25. maí 2021)
NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×