Mar­tens skaut Barcelona í úr­slit Meistara­deildarinnar

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Fyrra mark Börsunga og Mertens í uppsiglingu. 
Fyrra mark Börsunga og Mertens í uppsiglingu.  Barcelona

Barcelona vann 2-1 sigur á París Saint-Germain í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu kvenna í knattspyrnu nú rétt í þessu. Fyrri leiknum lauk með 1-1 jafntefli og Barcelona því komið í úrslit keppninnar.

Hinn hollenska Lieke Martens reyndist hetja Börsunga í dag. Hún kom liðinu yfir strax á 8. mínútu með frábærri afgreiðslu eftir sendingu Leila Ouahabi. Hægri fótur, hægra horn var niðurstaðan og Börsungar komnar yfir í einvíginu.

Þegar rúmur hálftími var liðinn af leiknum skoraði Martens annað mark sitt og annað mark Barcelona. Það var töluvert einfaldara en hún mætti þá einfaldlega á fjær og smellti knettinum í netið eftir sendingu Caroline Hansen.

Aðeins þremur mínútum síðar minnkaði Marie-Antoinette Katoto muninn fyrir Parísarliðið og staðan því 2-1 í hálfleik.

PSG þurfti aðeins eitt mark til að sigra einvígið en tókst ekki að koma knettinum í netið. Lokatölur því 2-1 Barcelona í vil og Börsungar komnar í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira