Uhunoma synjað um landvistarleyfi af Kærunefnd útlendingamála Tómas Manoury, Hallgrímur Helgason, Morgane Priet-Mahéo, Ívar Pétur Kjartansson og Magnús Tryggvason Eliassen skrifa 14. apríl 2021 11:30 Kærunefnd útlendingamála tók síðastliðinn föstudag fyrir mál Nígeríumannsins Uhunoma Osayomore. Niðurstaða nefndarinnar var sú að hún staðfesti eldri ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja umsókn hans um alþjóðlega vernd hér á landi og dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Samkvæmt úrskurðinum hefur hann 30 daga til að yfirgefa landið sjálfviljugur, ella verður honum vísað úr landi með valdi að þeim tíma liðnum. Úrskurðurinn var kveðinn upp tveimur dögum áður en 18 mánuðir voru liðnir frá því að hann kom til Íslands. Kærunefnd útlendingamála metur sögu hans „ótrúverðuga” og aðstæður í heimalandinu, Nígeríu, ekki nægilega „slæmar" til að réttlæta alþjóðlega vernd eða dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða á Íslandi. Uhunoma er 21 árs og hefur verið á flótta og vergangi frá því hann var 14 ára gamall, eftir að faðir hans myrti móður hans og yngri systir hans lést í slysi. Síðan þá hefur hann orðið fyrir barðinu á vinnumansali, ofbeldi, kynferðisofbeldi, og ítrekað orðið heimilislaus svo eitthvað sé nefnt. Í heil sjö ár hefur líf hans verið ein stór óvissa full af lífshættu, matröðum og almennum hryllingi. Ógæfa hans hófst í lok árs 2013 þegar hann var seldur mansali til Bretlands og var látinn vinna ýmiskonar erfiðisvinnu í Manchester-borg án þess að fá nokkur laun fyrir. Sú dvöl endaði með handtöku og mátti Uhunoma afplána 3 mánuði í hinum alræmdu Campsfield House fangabúðum fyrir innflytjendur áður en hann var sendur aftur til Nígeríu, 15 ára að aldri. Þar bjó hann rúmt ár á götunni áður en hann var aftur seldur mansali, þá til Líbíu, þar sem hin langa ferð hans til Íslands hófst. Æskuraunum sínum í Bretlandi hafði Uhunoma reynt að gleyma og nefndi þær ekki í fyrstu viðtölum sínum hér, en Kærunefndin náði að draga þær fram og notar þær nú gegn honum, frásögn hans er metin “ótrúverðug” af þessum sökum. Sár reynsla ungs manns er ekki metin honum til tekna vegna þess að hún var enn sárari en hann sjálfur gaf upp! Uhunoma hefur undanfarið sótt faglega aðstoð hjá Stígamótum en samtökin hafa reynst honum vel og fylgdi skýrsla frá þeim til Kærunefndarinnar, skýrsla sem studdi mál hans og frásögn.Af virðingu við Uhunoma ætlum við undirrituð ekki að fara í frekari smáatriði í sögu hans að svo stöddu. Mikil umfjöllun var um mál hans fyrir u.þ.b. tveimur mánuðum síðan og skilaði undirskriftarsöfnun til stuðnings honum tæplega 47 þúsund undirskriftum. Það gerir hana að 10. fjölmennustu undirskriftarsöfnun Íslandssögunnar. Sjá: https://is.wikipedia.org/wiki/UndirskriftalistiÞess má geta að Hallgrímur Helgason, rithöfundur, vinur og stuðningsmaður Uhunoma, hefur skráð hina ótrúlegu “ferðasögu” hans, í samvinnu við Anne-Cécile Mermet, dósent við Sorbonne-háskóla, upp úr viðtölum við hann og vinnur Hallgrímur að verki upp úr henni sem birtast mun síðar. Þegar úrskurður Kærunefndarinnar lá fyrir síðastliðinn föstudag var það mikið áfall fyrir Uhunoma. Hann kveið úrskurðarins og svaf lítið sem ekkert dagana á undan og alls ekkert í kjölfarið. Á sunnudag var hann svo lagður inn á bráðageðdeild í mjög slæmu ástandi, illa haldinn af þunglyndi, kvíða, áfallastreituröskun auk þess sem talin var hætta á því að hann veitti sjálfum sér skaða. Starfsmenn KNÚ sem undirita úrskurðinn eru Tómas Hrafn Sveinsson, Sindri M. Stephensen og Þorbjörg Inga Jónsdóttir. En auk setu sinnar í nefndinni gegna þau ýmsum trúnaðarstöðum í mannúðargeiranum. Tómas Hrafn er formaður barnaverndarnefndar Reykjavíkur og Þorbjörg Inga er formaður stjórnar Bjarkarhlíðar, nýrrar miðstöðvar fyrir þolendur ofbeldis. Gerir þetta ómannúðlega afstöðu þeirra enn óskiljanlegri. Lögmaður Uhunoma, Magnús D. Norðdahl, mun krefjast ógildingar á hinum nýja úrskurði fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur og verður málið þingfest þriðjudaginn 20. apríl næstkomandi. Dómsmálið getur tekið 6 til 12 mánuði og úrskurður kærunefndar stendur óbreyttur á meðan. Brottvísun vofir því yfir. Uhunoma Osayomore á nú íslenska fjölskyldu sem hann býr hjá og hefur tengst frá því hann kom til Íslands. Hans bíður atvinna um leið og leyfi fæst fyrir hann að dvelja hér og hann þarfnast engrar opinberrar aðstoðar. Hann á sér aðeins þann draum að fá að lifa í friði á Íslandi með fólkinu sem hann hefur kynnst og elskar hann. Með tíð og tíma langar hann til að mennta sig. Í aðdraganda alþingiskosninga veltum við undirrituð fyrir okkur hvað mikið þurfi til að stjórnvöld hlusti og virði vilja þjóðarinnar í málum sem þessum? Það samræmist ekki yfirlýstri stefnu stjórnvalda að vísa úr landi ungum þolanda mansals, sem hefur verið fylgdarlaus á flótta frá 14 ára aldri. Því beinum við orðum okkar til dómsmálaráðherra, forsætisráðherra og ríkisstjórnar Íslands: Bjargið Uhunoma! Virðingarfyllst, með von í hjarta. Tómas Manoury Hallgrímur Helgason Morgane Priet-Mahéo Ívar Pétur Kjartansson Magnús Tryggvason Eliassen Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hælisleitendur Hallgrímur Helgason Mest lesið Hollenska húsnæðislánið Arnór Ingi Finnbjörnsson Skoðun Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir Skoðun Óvissan í alþjóðamálum - Hvað ef Norðmenn verða á undan? Dagur B. Eggertsson Skoðun Þögnin rofin um þjóðartekjurnar Jón Gunnar Jónsson Skoðun Komið gott Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns Skoðun Sex ýkjur nei-sinna og já-sinna Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson Skoðun Þegar ríkið tekur reikninginn Erna Bjarnadóttir Skoðun Já núna – til að geta sagt nei síðar Friðrik Björgvinsson Skoðun Skoðun Skoðun Virðir Alþingi úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst? Hjörtur Hjartarson skrifar Skoðun Stöðug króna, afnám verðtryggingar og nýtt hlutverk Íslands í alþjóðlegu fjármálakerfi Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Traust er ekki sjálfgefið Hilmar Freyr Gunnarsson skrifar Skoðun Evrópusambandið, skjól frá Bandaríkjunum? Guttormur Þorsteinsson skrifar Skoðun Þegar ríkið tekur reikninginn Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þögnin rofin um þjóðartekjurnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Falleinkunn heima, en hugurinn í Brussel Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Tökum slaginn fyrir börnin Tótla I. Sæmundsdóttir,Þorbjörg Helga Þorgilsdóttir skrifar Skoðun Óvissan í alþjóðamálum - Hvað ef Norðmenn verða á undan? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hollenska húsnæðislánið Arnór Ingi Finnbjörnsson skrifar Skoðun Borgin þarf ekki kjötexi — hún þarf mælikerfi Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Stríð ESB gegn jöfnuði og velferð Andri Sigurðsson skrifar Skoðun Já núna – til að geta sagt nei síðar Friðrik Björgvinsson skrifar Skoðun Þegar efinn verður þýðingarmeiri en sannleikurinn Guðjón Heiðar Pálsson skrifar Skoðun Sex ýkjur nei-sinna og já-sinna Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Komið gott Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns skrifar Skoðun Sjálfstæð þjóð tekur sér sæti við borðið Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Ræður Evrópusambandið hvort dánaraðstoð verði leyfð á Íslandi? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun 4.677 nýir vegfarendur á leið í skólann Lára Hrafnsdóttir,Gunnar Geir Gunnarsson skrifar Skoðun Evran lækkar ekki vextina Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir skrifar Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir skrifar Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Sjá meira
Skoðun Stöðug króna, afnám verðtryggingar og nýtt hlutverk Íslands í alþjóðlegu fjármálakerfi Eggert Guðmundsson skrifar