Körfubolti

Heilla­ráð Kobe mögu­­leg á­­stæða þess að Knicks gæti komist í úr­­slita­­keppnina

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Julius Randle hefur verið frábær það sem af er leiktíð.
Julius Randle hefur verið frábær það sem af er leiktíð. EPA-EFE/JOHN G. MABANGLO

New York Knicks vann frækinn sigur á meisturum Los Angeles Lakers í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. Knicks gætu verið á leiðinni í úrslitakeppni deildarinnar í fyrsta sinn síðan 2013 og er það Kobe Bryant heitnum að mörgu leyti að þakka.

New York Knicks vann Los Angeles Lakers með 15 stiga mun í nótt, lokatölur 111-96. Julius Randle, fyrrum leikmaður Lakers, fór að venju fyrir sínum mönnum en hinn 26 ára gamli Randle hefur átt frábært tímabil fyrir Knicks. Það er að miklu leyti reynslu hans í deildinni að þakka sem og heillaráð sem hann fékk frá Kobe á sínum tíma.

Randle var í herbúðum Lakers frá því hann kom í deildina árið 2014 og allt til ársins 2018. Þaðan fór hann til New Orleans Pelicans og svo til Knicks árið 2019. Hann er nú að eiga sitt besta tímabil til þessa.

Í þeim 54 leikjum sem Randle hefur spilað í vetur hefur hann skorað 23 stig að meðaltali í leik, tekið 10.7 fráköst og gefið sex stoðsendingar. Frammistaða sem skilaði honum í Stjörnuleik deildarinnar.

Í nótt bætti hann um betur og skorað 34 stig ásamt því að taka tíu fráköst og gefa fjórar stoðsendingar. Enginn á vellinum skoraði meira og enginn tók fleiri fráköst.

Í leik næturinnar sagði einn lýsandi leiksins frá þeirri lífslexíu sem Kobe gaf ungum Randle á sínum tíma. Randle sjálfur skrifaði um þetta á vefnum Players Tribune í síðasta mánuði.

Kobe sagði Randle að alltaf þegar liðið lenti í nýrri borg fyrir næsta leik þá væri mikilvægt að finna íþróttasal og ná nokkrum – eða allmörgum – skotum áður en haldið væri á hótelið. Það skipti engu máli hvað klukkan væri eða hversu óhentugt það gæti verið. Þetta er leikurinn og vinnan er alltaf í fyrsta sæti.

Skömmu eftir að Kobe féll frá síðasta vor átti Knicks leik í Detroit. Klukkan var orðin margt en liðið fann samt sem áður skóla í grennd við hótelið sem samþykkti að hafa íþróttasalinn opinn lengur. 

Þegar Randle mætti beið yfirmaður íþróttasviðs skólans við hurðina. Sá sagði að það væri langt síðan skólinn hefði fengið beiðni sem þessa og leikmenn virtust ekki nenna að leggja þessa auka vinnu á sig. Sá síðasti til að mæta í skólann og ná skotum um miðja nótt, að sjálfsögðu Kobe Bryant.

Randle sagði að hann hefði fengið gæsahúð og verið hálfpartinn í uppnámi eftir á enda stutt síðan Kobe féll frá.

Það sem Randle er þó stoltastur af er að ungu leikmennirnir í herbúðum New York Knicks hafa ákveðið að feta í fótspor Randle. Mæta þeir með honum um miðja nótt til þess eins að halda sér við efnið og bæta sig.

Randle virðist því vera að kenna ungum leikmönnum liðsins það sem Kobe kenndi honum á sínum tíma. Það þarf að leggja mikið á sig til að ná árangri og vinnan er alltaf í fyrsta sæti.

Kobe Bryant og Julius Randle léku saman hjá Los Angeles Lakers árin 2014 til 2016.Rob Carr/Getty Images

NBA er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. NBA körfuboltinn er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.



Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×