„Það þarf að klára þriðja leikinn“ Siggeir Ævarsson skrifar 11. maí 2026 22:56 Einar Árni fer yfir stöðuna með sínum konum Vísir/Ernir Eyjólfsson Einar Árni Jóhannsson, þjálfari Njarðvíkur, var ánægður með sigurinn í kvöld en vildi meina að mögulega hefði kappið borið fegurðina ofurliði að þessu sinni. „
Ég held að þetta hafi ekki snúist um fegurðina í kvöld. Þetta var meira löngunin og viljinn. Baráttan gríðarleg. Við vorum pínu pirraðir á sóknaraðgerðunum í fjórða leikhluta, fannst við geta nýtt hlutina betur. Við vorum vissulega inn á milli að búa til ágætis skot en þau voru einhvern veginn ekki að detta. En varnarlega héldum við sjó í gegnum þetta. Setjum stórar köflur á lokakaflanum og bara gríðarlega sterkur og dýrmætur sigur.“ Leikurinn var í járnum framan af og Haukar náðu að byggja upp smá forskot en Einar var ánægður með hvernig hans konur svöruðu fyrir sig í öðrum leikhluta. „Haukarnir byrja náttúrulega bara af fítonskrafti. Tinna kemur með tíu punkta bara mjög snemma og þær eru að skjóta mjög vel. En aftur bara hrós á mitt lið. Þær sýndu yfirvegun og komu jafnt og þétt til baka og gera mjög vel í öðrum leikhluta. Ég held að við höldum þeim í tólf stigum í öðrum leikhluta. Vorum pínu svekkt að fara ekki upp fjögur sex í hálfleikinn. Þetta eru tvö jöfn lið og þetta verða áhlaup og barátta í 40 mínútur.“ Varnarleikur Njarðvíkinga var til fyrirmyndar í kvöld og virðist vera heldur betur að smella saman á réttum tímapunkti. „Þú hefur nú komið inn á þetta áður. Liðin þekkja hvort annað mjög vel og við vitum sem er að við verðum að vera virkilega vel „on“ og við þurfum að vera mjög öguð í því sem við erum að leggja upp varnarlega. Þær eru með frábæra sóknarmenn, Toi, Tinna, Krystal svona til að nefna til að byrja með. Og það eru mikil gæði, Solla af bekknum mjög góður skotmaður.“ „Við þurfum að vera „on top of our game“ og þurfum bara að spila okkar bestu vörn okkar í vetur og mér finnst svona við hafa náð löngum köflum bæði á föstudaginn og í kvöld þar sem við erum á þeim stað, að við erum að spila okkar bestu vörn, og þetta er augnablikið til þess.“ Leikurinn varð afar spennandi í lokin þar sem liðin skiptust á forystunni og Einar viðurkenndi að það hefði ekki verið þægilegt að fylgjast með leiknum á þeim tímapunkti. „Erfitt! En þegar Dani setur skotið og kemur okkur einu yfir þá leið mér betur. Svo bara þegar ég sá áræðnina og kraftinn í varnarleiknum á þessum síðustu þremur mínútum þá fór ég að trúa því að við værum að sigla þessu heim á ekki betri sóknarleik en raunin var í kvöld.“ Andri Már Eggertsson var á hljóðnemanum í kvöld og nefndi að Emil Barja hefði kvartað yfir dómgæslunni eftir leik og fundist Njarðvík fá að spila ansi grófan leik. Einar var ekki viss hvernig hann ætti að svara því mati Emils og hló dátt áður en hann svaraði. „Ég veit ekki hvað ég á að segja en af það er voru þær bara að prufa sitt eigið meðal. Það er ekkert flóknara en það.“ Að lokum spurði Andri hvort pressan væri núna öll á Njarðvík að klára einvígið í næsta leik en Einar gat ekki tekið undir það. „Pressan á okkur að klára þetta? Nei. Þetta eru tvö jöfn lið og við skulum hafa það á hreinu að þú færð ekki neitt fyrir að komast í 2-0. Við erum búin að vera hinumegin við borðið í þeim efnum. Það þarf að klára þriðja leikinn. Stelpurnar eru mjög meðvitaðar um það að til þess að vinna Hauka þurfum við að spila frábærlega, hvort sem það er heima eða úti.“ „Jákvæða í þessu er að við erum búnar að vinna alla þrjá leikina á Ásvöllum í vetur. Þá er ég ekki að tala um að það sé eitthvað forskot, heldur bara það skiptir ekki máli hvort við erum að spila heima eða úti. Það skiptir ekki máli úr þessu, við erum með stórkostlega stuðningsmenn. Ég veit að þeir munu fjölmenna í Ólafssal og gera allt til þess að hjálpa okkur að koma þessu yfir á fimmtudaginn.“
Bónus-deild kvenna UMF Njarðvík Körfubolti Mest lesið Gunnlaugur Árni fyrstur karla til að tryggja sig inn á U.S. Open Golf Bjargráður bjargaði báðum: „Í mínu tilfelli var þetta ekki þess virði“ Fótbolti Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Körfubolti Styðja við bakið á Ingvari í hans baráttu: „Alltaf að fara gera þetta“ Íslenski boltinn „Engar tilviljanir í lífinu og sérstaklega ekki í íþróttum“ Fótbolti Baulað á Trump í New York Körfubolti Yfirheyrður í ellefu tíma: „Ég er með réttu skjölin og vegabréfsáritun“ Fótbolti KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Körfubolti Víkingar kynna miðamál fyrir stærsta leik sumarsins Íslenski boltinn „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ Körfubolti Fleiri fréttir Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Sjá meira