Rut og Davíð höfðu komið sér vel fyrir að öllu leyti nema einu.
„Eitt af herbergjunum sem var alveg eftir að hugsa um, og er reyndar á svo mörgum stöðum, og það er hjónaherbergið. Af hverju situr þetta herbergi alltaf á hakanum?“ segir Soffía Dögg í byrjun þáttar.
„Það hefur mikla möguleika þannig að okkur langar að hafa það fínt og flott,“ segir Rut áður en þær fara saman af stað í verslunarleiðangur.
Skreytum hús þættirnir birtast hér á Vísi næstu sex miðvikudaga og fara samhliða því inn á Stöð 2+ efnisveituna. Fyrsta þáttinn má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan og við mælum með því að horfa á þáttinn áður en þú lest áfram.
Loftið málað í sama lit
Inni í herberginu var fallegur nýr bekkur og rúmteppi í stíl. Rut vildi halda snyrtiborðinu sínu og rúminu en annað mátti fara. Soffía fann strax að hún vildi setja rúmgafl við rúmið og fékk svo þá hugmynd að mála bæði veggi og loft í sama lit til að skapa stemningu.

Liturinn værð varð fyrir valinu, úr litakorti Soffíu Daggar hjá Slippfélaginu. Hún lýsir honum sem fullkominni blöndu af bleikum og gráum.
Ein af stóru breytingunum á rýminu var að færa rúmið á annan vegg og skapa þannig meira pláss. Einnig fjarlægði Soffía Dögg stóra dökka kommóðu til þess að skapa meira rými og þurfti þá að endurskipuleggja fataskápinn aðeins.

Gamalt og nýtt tengt saman
Kósý gardínur, nýir speglar, rósetta og nýtt loftljós gjörbreyttu stemningunni. Náttborð og lampar settu svo punktinn yfir i-ið.
Rúmgafl úr velúr setti sterkan svip á hjónaherbergið og við rúmið setti Soffía Dögg hvít náttborð sem pössuðu vel við snyrtiborðið.
„Það er svo gaman þegar maður nær að tengja gömlu húsgögnin við þau nýju,“ segir Soffía Dögg um þá ákvörðun.

Soffía Dögg er mjög hrifin af vegghillum og setur í þær kerti, gerviblóm og aðra skrautmuni. Rut er með snyrtiaðstöðu í herberginu og fékk við hana nýjan stól og hillur fyrir förðunarburstana.

Rut og Davíð voru ótrúlega ánægð með lokaútkomuna eins og sjá má í þættinum í spilaranum hér fyrir ofan.
„Ertu að grínast?“ sagði Rut þegar hún sá svefnherbergið eftir breytinguna. Hún sagði að þetta hafi farið fram úr þeirra væntingum og var hálf orðlaus.
„Er þetta sama herbergið?“
Í ítarlegri bloggfærslu á síðunni Skreytum hús verður hægt að finna frekari upplýsingar um breytingarnar og þær vörur sem Soffía Dögg notaði til þess að breyta rýminu.

Hægt er að sjá breytinguna og horfa á þáttinn í heild sinni í spilaranum hér ofar í fréttinni. Þættirnir eru sýndir á miðvikudögum hér á Vísi og fara samhliða því inn á Stöð 2+.