Innlent

Fólk í miklu basli á Kjalarnesi og Vesturlandsvegi lokað

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Ekki var gott skyggni þegar ljósmyndari Vísis var á ferð um Mosfellsdal í morgun.
Ekki var gott skyggni þegar ljósmyndari Vísis var á ferð um Mosfellsdal í morgun. vísir/vilhelm

Lokað hefur verið fyrir umferð um Vesturlandsveg á Kjalarnesi. Umferðaróhapp varð í morgun á veginum og sendi slökkviliðið dælubíl til að draga bíla til hliðar.

Á vef Vegagerðarinnar kemur fram að Vesturlandsvegur sé lokaður um Kjalarnes. Lokunin virðist vera við Esjurætur og ná upp á Kjalarnes.Vísir/Vilhelm

Varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu segir engin alvarleg slys hafa orðið á fólki. Hann telur að lokunina megi rekja til veðurs en á vef Vegagerðarinnar segir að lokunin sé vegna óhappsins.

Varðstjórinn segir slökkviliðsmenn á svæðinu hafi aðstoðað fólk að komast af Kjalarnesi. Þar er mikill vindur og skafrenningur þó ofankoma sé í sjálfur sér ekki mikil. Vindhraði er allt að 40 m/s í mestu hviðunum.

Vegagerðin segir að hægt sé að að fara hjáleið um Mosfellsheiði, Kjósarskarð og Hvalfjörð en þar sé vetrarfærð og lítið skyggni.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×