Handbolti

Íslenski Daninn búinn að jafna sig á HM-vonbrigðunum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Hans Lindberg varð heimsmeistari með Dönum 2019 en fékk ekki tækifæri til að endurtaka leikinn í janúar.
Hans Lindberg varð heimsmeistari með Dönum 2019 en fékk ekki tækifæri til að endurtaka leikinn í janúar. getty/Lars Ronbog

Hinn íslenskættaði Hans Lindberg segist vera búinn að jafna sig á vonbrigðunum að hafa ekki verið í danska landsliðinu sem varð heimsmeistari í handbolta í Egyptalandi í janúar.

Hinn 39 ára Lindberg hefur verið fastamaður í danska landsliðinu um langt árabil. Hann var hins vegar ekki valinn í HM-hóp Dana.

Lindberg er nú kominn aftur í danska liðið sem mætir Norður-Makedóníu í tveimur leikjum í undankeppni EM 2022 í þessum mánuði.

„Það var eðlilegt að láta óánægju sína í ljós. Það að ég hafi ekki verið valinn sýnir hversu gott liðið er,“ sagði Lindberg og bætti við að allt væri í góðu milli hans og Nikolajs Jacobsen, þjálfara danska liðsins.

„Það var engin ástæða til að hreinsa andrúmsloftið. Það var ný reynsla fyrir mig að vera vonsvikinn í janúar en svo þarf ég að sýna að það var röng ákvörðun.“

Lindberg segir að það hafi verið nokkuð auðvelt fyrir sig að fylgjast HM úr sófanum þótt fyrstu leikir Dana á mótinu hafi ekki verið neitt sérstaklega spennandi.

„Í þessum fyrstu leikjum slökkti ég oft eftir tuttugu mínútur því þetta var of auðvelt og frekar leiðinlegt. Danir voru of góðir og það var ekki mikil spenna,“ sagði Lindberg.

„Annars fylgdist ég með og fagnaði. Ég hugsaði mikið um hvernig ég myndi bregðast við svona stöðu, hvort það yrði erfitt. En það var frekar auðvelt því það eru margir í liðinu sem ég vil að gangi vel.“

Lindberg varð heimsmeistari með Dönum 2019 og Evrópumeistari 2008 og 2012. Hann var svo fimmtándi maður þegar Danir urðu Ólympíumeistarar undir stjórn Guðmundar Guðmundssonar 2016.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×