Til stendur að greining sýna úr skimuninni færist til Danmerkur eftir að ríkið tók við henni af Krabbameinsfélaginu um áramótin. Læknaráð Landspítalans, yfirlæknar og fleiri heilbrigðisstarfsmenn hafa lýst áhyggjum af þeirri ákvörðun og kallað eftir því að greiningin fari fram hér á landi áfram.
Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, sagði á Alþingi í gær að Landspítalinn hefði vísað verkefninu frá sér þegar ráðuneytið leitaði til hans síðasta sumar. Það sagði Jón Gunnlaugur Jónasson, yfirlæknir meinafræðideildar Landspítalans, misskilning í viðtali í útvarpsþættinum Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag.
Ráðuneytið hefði sent fyrirspurn í fyrra um hvað það kostaði að greina frumusýni á meinafræðideildinni og hvort að sýnafjöldi dygði til þess að halda uppi hæfni starfsfólks til framtíðar. Jón Gunnlaugur sagðist ekki hafa skilið bréfið sem ósk um að deildin tæki verkefnið að sér.
Svar spítalans þá hafi verið að meinafræðideildin hefði hvorki sérhæfðan búnað né mannskap til þess að greina sýnin. Á þeim tíma sem bréfið barst segir Jón Gunnlaugur að stjórnendur spítalans hefðu ekki vitað betur en að Krabbameinsfélagið ætlaði að sinna greiningunni áfram eða að til stæði að færa hana þaðan.
„Við settum í þetta bréf að við teldum ekki ástæðu til að óska eftir að sinna þessari rannsóknarstarfsemi,“ sagði Jón Gunnlaugur.
Þyrftu mannskap, búnað og húsnæði við hæfi
Landspítalinn kannar nú möguleikann á að taka við greiningunni eftir að ráðuneytið sendi nýtt erindi þess efnis. Jón Gunnlaugur segir að til þess að svo yrði þyrfti að ráða sérhæft starfsfólk sem hefur menntun og reynslu til að greina sýni af þessu tagi. Þá þyrfti tækjabúnað, hvort sem hann yrði leigður eða keyptur. Væntanlega væri slíkur búnaður enn til hjá Krabbameinsfélaginu.
Velti Jón Gunnlaugur upp möguleikanum á að fá tæki, starfsfólk og jafnvel húsnæðið sem Krabbameinsfélagið notað við greiningu sýna.
„Ég er ekki að fullyrða að við getum tekið þetta að okkur. Við myndum reyna að gera það og svara því til ráðuneytisins,“ segir hann.
Tók hann undir áhyggjur yfirlækna af því að greiningin færi úr landi. Sagðist hann telja það synd að verkefnið færi úr landi ef sérþekking væri til staðar á Íslandi. Hann dragi þó ekki í efa að dönsk rannsóknarstofa gæti sinnt greiningunni vel og rök gætu verið fyrir því að flytja greininguna úr landi.
Hann teldi þó ástæður sem hafa verið gefnar upp fyrir því að flytja greininguna úr landi ekki standast, þar á meðal að öryggi sjúklinga væri ógnað ef greiningin færi fram hér á landi.
„Mér finnst það vera dálítið vafasamt,“ sagði hann.
Ákvörðunin um hvort greiningin verði áfram á Íslandi eða flytjist úr landi sé á hendi ráðuneytisins þegar það er komið með allar upplýsingar í hendur frá Landspítalanum. Rætt hafi verið um að spítalinn svari erindi ráðuneytisins fyrir 15. mars en óvíst væri hvort að það næðist fyrir þann tíma.