Menning

Myndband sem sýnir mannlífið í miðborg Reykjavíkur árið 1946

Stefán Árni Pálsson skrifar
Mikið líf á þessum fallega degi í Reykjavík árið 1946. 
Mikið líf á þessum fallega degi í Reykjavík árið 1946. 

Í myndinni Reykjavík vorra daga eftir Óskar Gíslason má sjá ómetanlegar heimildir frá miðborg Reykjavíkur.

Í myndinni má sjá Íslendinga á vappi um 101 Reykjavík árið 1946 og það í lit sem verður að teljast mjög merkilegt fyrir mynd sem orðin er 75 ára gömul.

Í henni má sjá hvernig borgarmyndin hefur í rauninni breyst gríðarlega á þessum tíma en sumar byggingar í raun óbreyttar eins og sjá má hér að neðan.

Myndin er varðveitt er á Kvikmyndasafni Íslands. Hægt er að sjá hana og hundruði annarra gamalla mynda á streymisvef safnsins, islandafilmu.is, en þar er einnig búið að klippa hana niður í styttri myndbönd.

Uppfært: Myndbandið sem áður var í fréttinni var afritað í óleyfi af vef Kvikmyndasafns Íslands. Hér fyrir neðan má sjá myndina í heild sinni af vef safnsins.


Reykjavík vorra daga - fyrri hluti

  • Meðal þess sem kemur fram í fyrri hluta myndarinnar:
  • Sundiðkun í Reykjavík
  • Hitaveitutankar í Öskjuhlíð
  • Miðbær Reykjavíkur árið 1946
  • Höfnin og Faxaflói
  • Messa og ferming í Dómkirkjunni
  • Siglt til Kaupmannahafnar
  • Tívolí í Reykjavík
  • Útsýnisflug yfir Reykjavík
  • Nýting Jarðhita

Reykjavík vorra daga - seinni hluti

  • Meðal þess sem kemur fram í seinni hluta myndarinnar:
  • Vetur í miðbænum
  • Smíði og handavinna
  • Lestrarkennsla í Miðbæjarskólanum
  • Hússtjórnarkennsla
  • Leikið í snjónum
  • Jólaös í miðbænum
  • Ljósaböð og bólusetningar





Fleiri fréttir

Sjá meira


×