Patrekur með gott tak á Snorra Steini Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. febrúar 2021 12:00 Snorri Steinn Guðjónsson og Patrekur Jóhannesson. Patrekur hefur fagnað sjö sinnum sigri í síðustu sjö leikjum þeirra. Vísir/Samsett/Bára&Hulda Margrét Patrekur Jóhannesson stýrði Stjörnunni til sannfærandi sigurs á móti Val í Olís deild karla í handbolta í gær og hélt þar með í þá hefð sína að fagna sigri á móti Snorra Steini Guðjónssyni. Valsmenn áttu fá svör við kraftmiklu Stjörnuliði í gærkvöldi og töpuðu með átta marka mun, 27-35, þrátt fyrir að vera á heimavelli sínum á Hlíðarenda. Það er óhætt að slá því upp að Patrekur Jóhannesson sé kominn með gott tak á Snorra Steini Guðjónssyni. Leikurinn var sjöundi leikurinn í röð á Íslandsmótinu þar sem Patrekur vinnur Snorra Stein. Snorri Steinn vann síðast sigur á liði undir stjórn Patreks þegar Valur vann Selfoss á Selfossi 28. september 2017. Patrekur hefur fagnað sigri í öllum innbyrðis leikjum þeirra í Olís deildinni síðan en þrír af þeim voru í undanúrslitum úrslitakeppninnar vorið 2019. Patrekur þjálfaði Selfoss í sex af þessum sjö leikjum og í þeim var Snorri Steinn einnig með Guðlaugur Arnarsson sér við hlið. Snorri Steinn hefur reyndar fagnað sigri á Patreki á þessum tíma því hann stýrði Val til sigurs á Selfossi í bikarnum 18. febrúar 2019 en sá leikur var í átta liða úrslitum bikarkeppninnar. Leikirnir á Íslandsmótinu hafa hins vegar allir unnist af liðum undir stjórn Patreks.
Valsmenn áttu fá svör við kraftmiklu Stjörnuliði í gærkvöldi og töpuðu með átta marka mun, 27-35, þrátt fyrir að vera á heimavelli sínum á Hlíðarenda. Það er óhætt að slá því upp að Patrekur Jóhannesson sé kominn með gott tak á Snorra Steini Guðjónssyni. Leikurinn var sjöundi leikurinn í röð á Íslandsmótinu þar sem Patrekur vinnur Snorra Stein. Snorri Steinn vann síðast sigur á liði undir stjórn Patreks þegar Valur vann Selfoss á Selfossi 28. september 2017. Patrekur hefur fagnað sigri í öllum innbyrðis leikjum þeirra í Olís deildinni síðan en þrír af þeim voru í undanúrslitum úrslitakeppninnar vorið 2019. Patrekur þjálfaði Selfoss í sex af þessum sjö leikjum og í þeim var Snorri Steinn einnig með Guðlaugur Arnarsson sér við hlið. Snorri Steinn hefur reyndar fagnað sigri á Patreki á þessum tíma því hann stýrði Val til sigurs á Selfossi í bikarnum 18. febrúar 2019 en sá leikur var í átta liða úrslitum bikarkeppninnar. Leikirnir á Íslandsmótinu hafa hins vegar allir unnist af liðum undir stjórn Patreks. Síðustu leikir liða Patreks og Snorra Steins í Olís deild karla: 2020-21 Patrekur (Stjarnan) vinnur 8 marka sigur á Snorra (Val) í deildinni (35-27) 2018-19 Patrekur (Selfoss) vinnur 3 marka sigur á Snorra (Val) í úrslitakeppninni (29-26) Patrekur (Selfoss) vinnur 1 marks sigur á Snorra (Val) í úrslitakeppninni (32-31) Patrekur (Selfoss) vinnur 1 marks sigur á Snorra (Val) í úrslitakeppninni (35-34) Patrekur (Selfoss) vinnur 1 marks sigur á Snorra (Val) í deildinni (26-25) Patrekur (Selfoss) vinnur 4 marka sigur á Snorra (Val) í deildinni (28-24) 2017-18 Patrekur (Selfoss) vinnur 5 marka sigur á Snorra (Val) í deildinni (34-29) Snorri (Valur) vinnu 8 marka sigur á Patreki (Selfoss) í deildinni (31-23)
Síðustu leikir liða Patreks og Snorra Steins í Olís deild karla: 2020-21 Patrekur (Stjarnan) vinnur 8 marka sigur á Snorra (Val) í deildinni (35-27) 2018-19 Patrekur (Selfoss) vinnur 3 marka sigur á Snorra (Val) í úrslitakeppninni (29-26) Patrekur (Selfoss) vinnur 1 marks sigur á Snorra (Val) í úrslitakeppninni (32-31) Patrekur (Selfoss) vinnur 1 marks sigur á Snorra (Val) í úrslitakeppninni (35-34) Patrekur (Selfoss) vinnur 1 marks sigur á Snorra (Val) í deildinni (26-25) Patrekur (Selfoss) vinnur 4 marka sigur á Snorra (Val) í deildinni (28-24) 2017-18 Patrekur (Selfoss) vinnur 5 marka sigur á Snorra (Val) í deildinni (34-29) Snorri (Valur) vinnu 8 marka sigur á Patreki (Selfoss) í deildinni (31-23)
Olís-deild karla Stjarnan Valur Mest lesið „Þú ert bara að niðurlægja þinn eigin leikmann“ Fótbolti Eldræða Rikka G í beinni: „Að gera drengnum þetta er bara ljótt“ Fótbolti Myrti kærustuna og spurði svo ChatGPT hvað hann ætti að gera Sport Viggó á leið í topplið í bestu deild í heimi? Handbolti „Sorgmæddur en stoltur“ Fótbolti Gunnar Nelson með augun á bardaga í ár Sport Bam skoraði 83 stig í NBA í nótt Körfubolti Scholes bað Carrick afsökunar Enski boltinn Rosaleg dagskrá Man. City að hefjast Enski boltinn Flautumark kramdi drauma norðursins um sigur gegn Börsungum Fótbolti Fleiri fréttir Björgvin ekki af baki dottinn: „Bara eins lengi og mín er þörf“ Íslendingaliðið tapaði stórt en fer í umspil Viggó á leið í topplið í bestu deild í heimi? Ótrúleg dramatík í Íslendingaslag þar sem örlögin réðust „Ísak getur verið okkar framtíðar markvörður“ Samningaviðræður Snorra við HSÍ standa enn yfir: „Ég er alltaf bjartsýnn“ „Ég veit ekki hvaða gjöf þú ert að tala um“ Þrjú lið geta orðið deildarmeistarar | ÍR-ingar eygja enn von KA 25-30 FH | Hafnfirðingar tryggðu heimavallarrétt Ýmir og félagar með tvo sigra í röð í fyrsta sinn í fjóra mánuði Fá Egypta í Höllina fyrir HM og heimsækja þá líka Ómar á fæðingardeild en Snorri valdi sinn sterkasta hóp Svona var fyrsti fundur Snorra eftir EM Sjáðu markasýningu Viggós í dag Á góðri leið með því að tvöfalda framlagið sitt frá því í fyrra Sigurjón með 61 prósent markvörslu í norsku deildinni Haukur þriðji tíu marka maður Íslands í þýsku deildinni í dag Uppgjör: Svartfjallaland - Ísland 33-24 | Hér varð hrun Viggó kom að tuttugu mörkum í fyrsta sigrinum á árinu 2026 Frábær Ómar Ingi með markahæsta leikinn sinn á árinu 2026 Donni sneri aftur eftir aðgerð KA upp um tvö sæti með algjörum risasigri Fastur í Ísrael og leitar skjóls í neðanjarðarbyrgjum Viktor fagnaði fyrsta sigrinum gegn félögum sínum í Magdeburg „Ég er bara ekki nógu gáfaður til að geta rýnt almennilega í þessa stöðu“ Skoruðu tvö á síðustu mínútu og fóru upp fyrir Hauka Árið enn fullkomið hjá sveinum Guðjóns Vals Markaveisla þegar ÍBV vann silfurstrákana Uppgjörið: Valur - Fram 27-35 | Meistararnir fóru illa með toppliðið Elín Klara fékk tíu af tíu mögulegum fyrir frammistöðuna Sjá meira