Innlent

Enginn greindist með veiruna innanlands

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Enginn greindist með kórónuveiruna innanlands í gær og aðeins þrír á landamærunum.
Enginn greindist með kórónuveiruna innanlands í gær og aðeins þrír á landamærunum. Vísir/Vilhelm

Enginn greindist með kórónuveiruna innanlands í gær. Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á covid.is.

Einn greindist með virkt smit á landamærum og beðið er niðurstöðu mótefnamælingar hjá tveimur.

Nýgengi innanlandssmita er nú 6,8 en var 8,2 í gær. Nýgengi landamærasmita 7,1 en var 7,6 í gær.

28 eru í sóttkví, 798 í skimunarsóttkví og 43 í einangrun. Þá eru sautján manns á sjúkrahúsi.

956 einkennasýni voru tekin í gær, tíu sýni við sóttkvíar- og handahófsskimanir og við skimanir á vegum Íslenskrar erfðagreiningar og 390 sýni við landamæraskimun.

Fréttin hefur verið uppfærð.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×