Erlent

„Munið þennan dag að eilífu“

Samúel Karl Ólason skrifar
Donald Trump, þegar hann hélt ræðu fyrir framan Hvíta húsið í gær.
Donald Trump, þegar hann hélt ræðu fyrir framan Hvíta húsið í gær. AP/Evan Vucci

Undir lok baráttufundar Donalds Trump, fráfarandi forseta, við Hvíta húsið í gær, sagði hann stuðningsmönnum sínum að berjast til að bjarga landi þeirra. Nú væri tíminn til að sýna styrk.

„Við munum aldrei gefast upp. Við munum aldrei viðurkenna ósigur. Það gerist ekki. Þú viðurkennir ekki ósigur vegna þjófnaðar,“ sagði Trump. „Við unnum þessar kosningar og við unnum þær með yfirburðum. Þetta voru ekki jafnar kosningar.“

Í ræðu sinni gagnrýndi hann þingmenn harðlega og fór með ósannindi um forsetakosningarnar í nóvember. Hann hvatti fólk til að fara til þinghússins og mótmæla stuldi kosninganna og sagði þeim að muna þennan dag að eilífu.

Trump hét því að hann myndi fylgja þeim að þinghúsinu og sendi þau af stað þar sem mótmæli urðu að óeirðum og stuðningsmenn forsetans brutu sér leið inn í þinghúsið. Þingmenn og starfsmenn þingsins þurftu að leita sér skjóls á meðan óeirðarseggir tókust á við lögreglu og ráfuðu um ganga, sali og skrifstofur þingsins og brutu rúður.

Ein kona var skotin til bana þar sem hún var með hópi manna að reyna að brjóta sér leið inn í þingsal þar sem vopnaðir lögregluþjónar stóðu vörð. Þrír aðrir eru sagðir hafa dáið en ekki er búið að opinbera hvernig.

Fór sjálfur heim

Sjálfur fór Trump heim til sín í Hvíta húsið, reiddist út í starfsfólk sitt og gagnrýndi Mike Pence, varaforseta sinn, á Twitter fyrir að hafa ekki neitað að staðfesta niðurstöður forsetakosninga sem Trump tapaði. Skömmu fyrir ræðu Trumps hafði Pence ítrekað við Trump að hann hefði ekki vald til að neita að staðfesta niðurstöðurnar og samkvæmt heimildum New York Times hafði það reitt forsetann til reiði.

Trump sagði Pence vera veikgeðja og sakaði starfsmannastjóra hans, Marc Short, um að hafa valdið afstöðu varaforsetans. Short var í kjölfarið meinaður aðgangur að Hvíta húsinu.

Í samtali við fjölmiðla vestanhafs hafa nokkrir starfsmenn Hvíta hússins lýst yfir hneykslun sinni á framferði forsetans. Fyrrverandi starfsmenn og ráðgjafar Trumps hafa einnig stigið fram og sagt hann hafa ýtt undir ofbeldi gærdagsins og jafnvel þingmenn hafa sakað hann um að hafa valdið því.

Bandamenn Trumps kölluðu eftir átökum

Áður en Trump steig á svið á kosningafundinum við Hvíta húsið hafði Rudy Giuliani, einkalögmaður hans, kallað eftir því að deilurnar um kosningarnar yrðu leystar með einhvers konar einvígi við Demókrata.

Þar áður hafði Donald Trump yngri, sonur forsetans, haldið ræðu þar sem hann sagði þingmönnum hollast að berjast fyrir föður sinn. Annars myndi hann „vera í bakgarði þeirra“ eftir nokkra mánuði. Að þau yrðu tekin niður og það yrði skemmtilegt.

Nýkjörni þingmaðurinn Madison Cawthorn, sá yngsti í nútímasögu Bandaríkjanna, endaði sína ræðu á því að kalla samstarfsfólk sitt heigla og bað fundargesti um að kyrja hátt: USA, USA, USA.

Þá gagnrýndi þingmaðurinn Mo Brooks aðra þingmenn í ræðu sinni og sagði að nú væri kominn tími til þess að föðurlandsvinir „tækju niður nöfn og spörkuðu í rassa“.

Klukkustundum eftir að óeirðaseggir höfðu í rutt sér leið inn á þingið og eftir áeggjan frá starfsmönnum sínum og ráðgjöfum, birti Trump myndbandsávarp á Twitter. Þar varði hann mestum tíma af stuttu ávarpi sínu í að skammast yfir kosningunum í nóvember og sagðist hann skilja að fólk væri reitt.

Hann bað fólk þó um að snúa heim og endaði myndbandið á að þau væru elskuð og einstök.


Tengdar fréttir

Trump segir að valdaskiptin verði friðsæl

Stuttu eftir að kjör Joe Bidens og Kamölu Harris sem næsta forseta og varaforseta Bandaríkjanna var staðfest sendi Donald Trump, fráfarandi forseti, frá sér yfirlýsingu sem aðstoðarmaður hans, Don Scavino, birti á Twitter. Lokað hefur verið á Twitter-aðgang forsetans sjálfs.

Bandaríkjaþing staðfestir kjör Bidens og Harris

Bandaríkjaþing staðfesti nú rétt í þessu kjör Joe Bidens og Kamölu Harris sem forseta og varaforseta Bandaríkjanna eftir ótrúlega atburðarás í gær þar sem þetta lýðræðislega ferli var hindrað.

Trump einangraður eftir ótrúlega atburðarás

Þingmenn, stórfyrirtæki og stjórnmálaleiðtogar hafa fordæmt Donald Trump, fráfarandi Bandaríkjaforseta, fyrir viðbrögð hans við atburðum gærkvöldsins í þinghúsinu í Washington D.C. Twitter ákvað að loka fyrir aðgang hans af ótta við að færslur hans myndu hvetja til ofbeldis og samstarfsmenn hans eru sagðir íhuga að koma honum frá völdum. 

„Þetta eru ekki mótmæli, þetta er uppreisn“

Joe Biden, verðandi Bandaríkjaforseti, flutti ávarp nú fyrir stundu vegna þeirrar ringulreiðar sem nú ríkir í Washington D.C. eftir að mótmælendur brutu sér leið inn í þinghúsið. Biden baðst afsökunar á að hafa flutt ávarp sitt seinna en áætlað var, en upphaflega hafði hann ætlað að tala um efnahagsmál í ávarpi sínu.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×