Tafir á merkingum hjá Strætó valda ruglingi Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar 10. júní 2013 16:54 Strætó ekur nú um Sæbraut í stað Hverfisgötu. MYND/STRÆTÓ
Sumaráætlun Strætó tók gildi í gær, en átta leiðir ganga nú á hálftíma fresti. Þá er Strætó hættur að ganga Hverfisgötu um óákveðin tíma vegna stórtækra framkvæmda sem hefjast þar í sumar og ekur nú um Sæbraut í staðinn. Til stendur að setja upp tvær nýjar biðstöðvar við Hörpu og aðra við Sólfarið, en samkvæmt upplýsingum fréttastofu hafa orðið tafir á þeim framkvæmdum. Strætisvagnarnir stoppa því í ómerktum útskotum sitthvoru megin við tónlistarhúsið þar sem mjög erfitt er að sjá að um biðstöð sé að ræða. Þá hafa orðið einhverjar tafir á uppfærslu snjallsímaforrits Stætó. „Það urðu tafir á merkingunum þar sem leiðin færðist fyrr en gert var ráð fyrir. Þetta hefur valdið einhverjum misskilningi hjá vagnstjórum og farþegum en merkingarnar ættu að verða komnar upp í fyrramálið. Eins eru hitalagnir og fleira sem þarf að gæta að þegar biðskýlin eru sett upp,“ segir Jón Halldór Jónasson, upplýsingafulltrúi hjá Reykjavíkurborg. Á heimasíðu Strætó kemur fram að helstu breytingar sem verða á akstri eru að leiðir 2, 11, 12, 13, 14, 15, 24 og 28 skipta yfir á hálftíma tíðni yfir sumartímann. Leiðir 1, 3, 6, 11, 12 og 13 aka upp og niður Snorrabraut að/frá Sæbraut og eftir Sæbraut og Kalkofnsvegi við Hörpu til og frá Lækjartorgi. Engin breyting verður á tíðni á öðrum leiðum.
Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Fleiri fréttir Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Sjá meira