Meirihlutinn merkir við slysatryggingu á skattframtali Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar 31. mars 2014 10:55 Nýlega var slysatrygging vegna heimilisstarfa víkkuð út þannig að hún gildi líka fyrir viðhaldsstörf og viðgerðir á heimilinu. NordicPhotos/Getty
Árið 2013 merktu 147.500 Íslendingar við slysatryggingu við heimilisstörf á skattaframtali. Iðgjaldið er 450 krónur og því voru greiddar rúmar 66 milljónir króna til Sjúkratrygginga Íslands (SÍ) það árið. SÍ taka við tilkynningum um slys og greiða út bætur ef umsókn er samþykkt. Á árinu 2013 barst 141 tilkynning um slys við heimilisstörf. Bótaskylda var samþykkt í 93 tilfellum og greiddu SÍ út 22 milljónir í bætur. Hugtakið slys er skilgreint í lögum og reglugerð sem skyndilegur utanaðkomandi atburður sem veldur meiðslum á líkama þess sem er tryggður og gerist án vilja hans. Því nær tryggingin ekki til allra atvika eða meiðsla sem geta átt sér stað við heimilisstörf. Ef maður dettur um stól við þrif getur það fallið undir slysahugtakið. Ef maður aftur á móti misstígur sig við þrif án utanaðkomandi áhrifa, gæti það fallið utan tryggingaverndar.Berglínd Ýr Karlsdóttir, deildarstjóri slysa- og sjúklingatryggingar, segir af og frá að SÍ græði á heimilistryggingunni.Aðsend myndBerglind Ýr Karlsdóttir er deildarstjóri slysa- og sjúklingatryggingar. Hún segir af og frá að SÍ græði á heimilistryggingunni vegna 44 milljóna króna mismunar á iðgjöldum og greiðslu bóta. „Stofnunin situr ekki uppi með gróða eins og tryggingafélag. Heimilistryggingin er partur af stórum flokki slysatrygginga sem falla undir almannatryggingar. Mismunurinn vegna heimilistryggingar rennur til þeirrar heildar. Það er ekki þannig að það safnist sjóður,“ segir Berglind. Hún segir tvö þúsund tilkynningar berast stofnuninni árlega. Slys vegna heimilisstarfa eru eingöngu 7-8 prósent af tilkynningum. En gæti verið að fáir viti um rétt sinn til bóta og merki við skattskýrsluna hugsunarlaust? „Við getum ekki vitað það. En reglugerð um trygginguna var víkkuð út árið 2012 þannig að hún gildi líka fyrir viðhaldsstörf og viðgerðir á heimilinu. Við höfum satt best að segja búist við að tilkynningum fjölgi í kjölfarið. Það á kannski eftir að koma betur í ljós á næstu misserum.“
Mest lesið Ellefu ára hetja bjargaði systur sinni frá drukknun Innlent Tólf milljónir í segulómtæki sem dró að sér skúringabúnað Innlent Margföld aðsókn í vökvagjöf: „Fólk er ekkert að gera þetta að gamni sínu“ Innlent Sendur til Íslands eftir þrætu um persónuupplýsingar innflytjenda Erlent Komnir djúpt gegnum línu Úkraínumanna Erlent Áslaug Sigríður Alfreðsdóttir er látin Innlent Barinn við barinn en gerandinn farinn Innlent Telur enn mögulegt að ná samkomulagi Innlent B sé ekki best Innlent Stórfelld líkamsárás og ráðist á dyravörð Innlent Fleiri fréttir Stoltur faðir fegurðardrottningar gekk frá Gleðigöngunni með óbragð í munni Tollarnir sem bíta nú þegar, sögulegur fundur og fjársjóður Fækkar sífellt í Þjóðkirkjunni Rithöfundur ráðinn til varnarmálaskrifstofunnar Barinn við barinn en gerandinn farinn Tólf milljónir í segulómtæki sem dró að sér skúringabúnað Gerðu langtímasamning um niðurgreidd liðskipti og brjóstaminnkun Dagbjartur aðstoðar Daða Má Innviðaráðherra leggur af stað í fundaferð um samgöngumálin Áslaug Sigríður Alfreðsdóttir er látin Ellefu ára hetja bjargaði systur sinni frá drukknun Telur enn mögulegt að ná samkomulagi Fagnar áformum um mótun atvinnustefnu Úrskurðaður í gæsluvarðhald grunaður um íkvekju Hlið við Reynisfjöru, tollar og yfirlýsing leiðtoga ESB B sé ekki best Kiðjabergsmálinu hvergi nærri lokið Mannréttindabarátta ekki í samkeppni um athygli Stórfelld líkamsárás og ráðist á dyravörð Margföld aðsókn í vökvagjöf: „Fólk er ekkert að gera þetta að gamni sínu“ Tilfelli alvarlegrar ókyrrðar gætu tvöfaldast vegna loftslagsbreytinga Óvenjuleg ákvörðun, holskefla kvartana og ókyrrð Upphaflegasta útgáfa Snorra-Eddu snýr heim eftir fjögurra alda útlegð Einnota plastvörur fái sérstaka merkingu „Sannarlega ekki eitthvað sem ég ætlaði að taka þátt í“ Stytta opnunartíma Seltjarnarneslaugar: „Er þetta það sem við viljum spara í?“ Ókyrrð að aukast en lítil hætta á ferðum Komu ferðamönnum í sjálfsheldu á Búlandstindi til aðstoðar Fylla í skörð reynslubolta Þurfti rannsóknarvinnu til að finna upplýsingar um bílastæðarukkun Sjá meira