Landið minna en talið hefur verið 20. desember 2004 00:01
Ísland er þrjú hundruð ferkílómetrum minna en fullyrt hefur verið, en strandlengjan er sextán hundruð kílómetrum lengri en talið var. Þar með eru kennslubækur, kort og ýmsar aðrar upplýsingar úreltar að sögn framkvæmdastjóra Loftmynda sem hafa mælt landið af mikilli nákvæmni. Það eru ýmsir hlutir sem maður gengur út frá að séu staðreynd og óhrekjanlegir, eins og til dæmis opinber stærð landsins, flatarmál þess og lengd strandarinnar og fleira þess háttar. En svo er greinilega alls ekki, því Ísland er ekki af þeirri stærð sem haldið hefur verið fram. Arnar Sigurðsson, framkvæmdastjóri Loftmynda segir að samkvæmt nýjum mælingum sé landið 102 þúsund og 700 ferkílómetrar en ekki 103 þúsund eins og talið hafi verið. Sem betur fer sé strandlengjan þó mun lengri en ætlað hafi verið áður, eða 6400 kílómetrar í stað 4700 eins og talið var áður. 300 ferkílómetra svæði á Reykjanesi er það sem vantar á Ísland miðað við þessar nýju upplýsingar. Arnar segir opinberar tölur og kort byggjast á gömlum og úreltum upplýsingum, en hann segir hins vegar að þær upplýsingar sem Loftmyndir byggi sín kort á, séu gríðarlega nákvæmar. Þetta þýðir þá væntanlega að kennslubækur, kort og ýmislegt fleira sé úrelt og rangt. Arnar segir svo vera og almennt þurfi að endurnýja opinberar upplýsingar um stærð og gerð landsins. Arnar segir að kort sem Landmælingar Íslands gefa út séu því röng, enda upplýsingarnar sem þau byggist á rangar. Samkvæmt lögum um Landmælingar Íslands þurfa þeir sem gera kort eða vinna landupplýsingar að tilkynna stofnunni um það. Arnar segir að Loftmyndir hafi ekki rækt þá skyldu sína, enda sé um að ræða úreltar reglur.
Fréttir Innlent Mest lesið Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Innlent Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Innlent Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta Innlent Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Innlent Meloni segir Trump skrökva upp á sig Erlent Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Innlent Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Innlent Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Erlent Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Innlent Jensína Edda er Reykvíkingur ársins Innlent Fleiri fréttir Til skammar að málið hafi sofnað í meðferð þingsins Fjöldi bíður niðurstöðu og stór stund á Þingvöllum Jensína Edda er Reykvíkingur ársins Sektaður fyrir að aka á göngugötu Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta „Ég hef verið kölluð þingmaður dauðans“ Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Höfuðvígi vændismansals, mótmælandi sem brotnaði niður og Þingvellir Björgunarsveitir sóttu göngumann við Háafoss Þingið komið í sumarfrí Samþykkja úrræði fyrir fólk sem sæta þarf öryggisráðstöfunum Óljós um tilganginn en þekktu hvert egg Allt eftirlit matvæla undir einni stofnun Boltinn sé hjá fjarskiptafélögunum Fresta opnun Sundhallar Reykjavíkur Áhöfnin hlúði að Hólmsteini á siglingunni til Hvalfjarðar Vetur í íslenskri kvikmyndagerð Handtökur í vændisrannsókn lögreglu Hjartaljósin ekki sloppin „Virðist vera einhverskonar gamaldags sjómennskuhefndaraðgerð“ Stór mál á dagskrá síðasta þingfundar fyrir þingfrestun Lést í slysi á Hálsasveitarvegi Hvalavinurinn í tunnunni og Kaleo undirbýr Þingvallakonsert Inga ræddi við fulltrúa Tiktok um að hækka aldursmörk Halda í opinbera heimsókn til Færeyja Sjá meira