Keyrir framhjá slysstað daglega 9. september 2004 00:01
Að minnsta kosti ellefu féllu og nokkur hundruð særðust þegar öflug bílsprengja sprakk við sendiráð Ástralíu í Jakarta í Indónesíu í morgun. Bílasprengjan sprakk við fjölfarna umferðagötu í miðborg Jakarta og til marks um það hvað sprengjan var öflug myndaðist fjögurra metra djúpur gígur þar sem bíllinn stóð. Ómar Valdimarsson, sendifulltrúi Rauða Kross Íslands hafði fyrr um morguninn keyrt framhjá ástralska sendiráðinu á leið til vinnu, eins og hann gerir á hverjum degi. Skrifstofa hans er um þrjá kílómetra frá sendiráðinu og segir Ómar að einhverjir samstarfsmanna hans hafi talið sig finna fyrir skjálfta í morgun. Þá hafi um 100 manns frá Rauða krossinum unnið á svæðinu í dag við að koma fólki út úr rústum og koma því á sjúkrahús, dreifa blóði og lyfjum. Grunur leikur á að íslamski öfgahópurinn Jemaah Islamiah hafi komið sprengjunni fyrir en sá hópur er sagður einskonar útibú al-Qaeda í suðaustur-Asíu. Vestræn sendiráð í Jakarta höfðu nýlega hert öryggisráðstafanir sínar enda lék grunur á að einhvers konar hryðjuverkaárás væri í uppsiglingu. Þá eru forsetakosningar fyrirhugaðar í Indónesíu síðar í þessum mánuði og búist er við óróa í tengslum við þær. Ekki er þó vitað hvort árásinni nú er á einhvern hátt beint gegn Ástralíu en skemmst er að minnast þess þegar 202 létust, flestir ástralskir ríkisborgarar, í tveimur sprengingum á eyjunni Balí fyrir tveimur árum. Ómar segir að þetta komi ekki sérstaklega á óvart þar sem alltaf sé hægt að eiga von á hryðjuverkum í landinu. Þetta sé ekki spurning um hvort, heldur hvar og hvenær þær verði. Hann segir miklar öryggisráðstafanir í öllum stærri borgum og mikið leitað að sprengjum í bílum fyrir utan verslanir, veitingastaði og hótel. Á heimili Ómars eru til að mynda vopnaðir verðir. Hann segist því vita af þessari hættu alla daga, þetta sé alltaf að gerast og muni halda áfram að gerast.
Erlent Fréttir Mest lesið Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Blóðbað á lestarpalli Erlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Rukka erlenda nemendur um milljónir Innlent Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Innlent Fleiri fréttir Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Sjá meira