Fleiri hryðjuverk í Rússlandi? 9. september 2004 00:01
Sprengiefni og skotvopn hafa fundist í kvikmyndahúsi í Pétursborg í Rússlandi en húsið var lokað vegna viðgerða. Málið vekur óhug og þykir minna um margt á það hvernig hryðjuverkamennirnir undirbjuggu árásina á skólann í Beslan. Alls konar efni til sprengjugerðar; dínamít og plastsprengiefni auk heimatilbúinna hvellhetta fundust í bíóinu. Að auki var þar riffill og skotfæri. Enn er óljóst hverjir komu þessum búnaði fyrir í húsinu en aðfarirnar minna á það hvernig hryðjuverkamennirnir í Beslan komu sprengjum fyrir í skólanum á meðan verið var að gera við hann. Yfirvöld í Rússlandi eru sérstaklega á verði vegna hryðjuverka en fréttaskýrendur telja þó að þessi sprengjufundur þurfi ekkert endilega að tengjast hryðjuverkahópum. Starfsemi skipulagðra glæpahópa er umfangsmikil í Pétursborg og talið er allt eins líklegt að þessi fundur tengist að einhverju leyti innri baráttu glæpahópa. Utanríkisráðherra Rússa var afar þungorður í garð Vesturlanda í dag og sakaði vestræn stjórnvöld um tvöfeldni þegar kemur að málefnum hryðjuverkahópa. Það sem svíður Rússa mest er að Aslan Maskhadov, fyrrverandi forseti Tsjetsjeníu, sem Rússar hafa nú sett fé til höfuðs og saka um að hafa skipulagt árásina í Beslan, hefur fengið hæli, bæði í Bandaríkjunum og Bretlandi.
Erlent Fréttir Mest lesið Tveir leigubílstjórar sviptir ökuréttindum við Keflavíkurflugvöll Innlent Fjórir karlmenn stálu Labubu í tugatali Erlent Bláa lónið varar ferðamenn við óprúttnum leigubílstjórum Innlent Lögreglan tekur leigubílamálin fastari tökum Innlent Íhugar að bjóða Selenskí eftir allt saman Erlent Eiganda Trump Burger verður sparkað úr landi Erlent Sjaldan fleiri mótmælt ríkisstjórninni Erlent Sendiherra á Íslandi á grundvelli misskilnings Innlent Níu gistu fangageymslur í nótt Innlent Mikill eldur í gömlu timburhúsi á Skaganum Innlent Fleiri fréttir Furðar sig á viðvaningshætti í Washington og segir fundinn óþarfan Fjórir karlmenn stálu Labubu í tugatali Sjaldan fleiri mótmælt ríkisstjórninni Íhugar að bjóða Selenskí eftir allt saman Úkraína og Evrópa óttast meðvirkni Trump Bjartsýn á að Trump nái árangri með Pútín Eiganda Trump Burger verður sparkað úr landi Mexíkó hafnar aftur hermönnum Trumps „Úkraínumenn þurfa örugglega að gefa eftir land“ Skotárás á Times Square Nyrsta olíuvinnslusvæði Noregs formlega opnað Eldur kviknaði í sögufrægri dómkirkju Gefur ekkert landsvæði eftir Aserar og Armenar skrefi nær friði eftir sögulegan fund í Hvíta húsinu Geimfari Apollo 13 látinn Trump og Pútín funda í Alaska næsta föstudag Rekinn eftir tvo mánuði hjá skattinum og samdægurs tilnefndur sendiherra á Íslandi Ákvörðun öryggisráðsins til marks um enn frekari stigmögnun Skipar hernum í hart við glæpasamtök Stefni á tilraun með kjarnorkuknúna eldflaug á norðurslóðum Fann hagtölur sem honum líkar og hélt óvæntan blaðamannafund Skýrasta myndin af halastjörnunni, eða vopninu, hingað til Sakaði „sveppamorðingjann“ um að hafa eitrað fyrir sér í þrígang Rússar enn að fá „samstöðustyrki“ en Úkraínumenn ekki Sektaður fyrir að aka á 321 kílómetra hraða Keppa við Kínverja og Rússa um að koma kjarnakljúfi til tunglsins Öryggisráðið ákveður að taka yfir Gasa-borg Mun funda með Pútín þó fundur með Selenskí sé hvergi í sjónmáli Flokkurinn fyrir sjálfstætt Austur-Grænland: „Flug til Íslands allt árið!“ Demókratar setja sig í stellingar fyrir forsetaframboð Sjá meira