Sjáðu magnaða stoðsendingu Björgvins Páls í sigurmarki Bergischer Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 15. desember 2015 15:15
Björgvin Páll Gústavsson kórónaði stórleik sinn með því að gefa stoðsendinguna í sigurmarki Bergischer á Lemgo í leik liðanna í þýsku úrvalsdeildinni um helgina. Björgvin Páll byrjaði leikinn af miklum krafti og varði til að mynda tvö vítaköst snemma í leiknum. En þrátt fyrir magnaða frammistöðu hans í fyrri hálfleik náði Lemgo að halda í við Bergischer, sem hafði eins marks forystu í hálfleik, 15-14. Bergischer náði fimm marka forystu þegar tíu mínútur voru til leiksloka en Lemgo kom til baka og jafnaði metin fjórum sekúndum fyrir leikslok, 30-30. Lemgo hafði tekið markvörðinn sinn af velli til að fjölga í sókninni. Björgvin Páll var fljótur að átta sig á því, hirti boltann úr markinu og kom honum fram á Maximilian Weiss sem skoraði í autt markið, rétt áður en leiktíminn rann út. „Stemningin var ótrúleg og sigurinn í dag segir mikið um liðið,“ sagði Björgvin Páll eftir leikinn en eins og gefur að skilja brutust gríðarleg fagnaðarlæti út eftir að sigurinn var í höfn. „Ég hef aldrei upplifað annan einn sigur.“ Bergischer er í fimmtánda sæti þýsku deildarinnar en sigurinn á Lemgo var sá fyrsti hjá liðinu í deildinni síðan um miðjan september. Myndbandið má sjá hér eða í spilaranum efst í fréttinni.
Handbolti Mest lesið Kinu Rochford sagður myrtur Körfubolti Goðsögnin lætur Ancelotti heyra það: „Rífið samninginn hans strax“ Fótbolti Súrrealískt að spila golf með Trump Fótbolti Segir að það þurfi að skipta oftar um gervigras á Íslandi Fótbolti Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Enski boltinn Suður-Afríka syrgir landsliðsmann skömmu eftir HM Fótbolti Maður dagsins á HM: Tveimur árum of seinn á veitingastaðinn Fótbolti Eiga Englendingar kryptónítið hans Haaland uppi í erminni? Fótbolti Með Haaland á toppi vinsældalistans Fótbolti „Ég trúi þessu eiginlega ekki enn þá“ Fótbolti Fleiri fréttir Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Sjá meira